| Komin aftur til Svíþjóðar |
| Silja ritaði 23.August 2009 |
Jæja we are back in business þannig að þið getið byrjað að fylgjast með blogginu aftur. Komum til Svíþjóðar í gærmorgun eftir mjög langan dag. Maður verður svo ruglaður þegar maður tekur svona næturflug, sérstaklega þegar maður verður að horfa á bíomyndirnar sem eru í boði – maður nýtir sko allan peninginn sinn núna. Svo fær maður sér bara morgunmat þegar maður kemur heim og svo fer maður að sofa í smá stund en alls ekki of lengi því að þá getur maður ekkert sofnað seinna um kvöldið. Sumarið hefur verið mjög gott hjá okkur skötuhjúunum. Við erum búin að vinna alveg helling, borða fullt af góðum mat, fara í útilegur, hitta skemmtilegt fólk og svo náttúrulega braut ég ofurklaufi mig aftur. Það er víst ekki mælt með því að maður fari að reka hesta á ójöfnu svæði (og detta meira segja 2x í holur) þegar maður er frekar nýlega (3vikur) búin að taka allt járndraslið úr beinunum sem var sett þangað til að byrja með til þess að halda olnboganum saman. En ég á núna fínt skrúfusett (reyndar plötu og vír líka) og verð komin með annað slíkt eftir ár, þannig að ef ykkur vantar títaníum skrúfur þá getið þið fengið þær á góðu verði. Þetta verður greinilega sagan endalausa þetta blessaða olnbogbrot þar sem þetta er ekki búið enn og eins og læknirinn minn á Íslandi sagði þá verða sænsku læknarnir eflaust hissa þegar þeir sjá röntken myndina mína núna í september, sem átti að meta hvort þeir myndu taka allt járndraslið úr mér eða ekki. Víravírkið barasta horfið og önnur plata komin í staðinn. Annað sem við og þá meina ég aðallega Hjalti (þar sem ég er orðin of fötluð til þess að hjálpa) gerðum í sumar var að halda áfram að gera upp traktorinn sem er af gerðinni Deutz (um 50 ára gamall. Við byrjuðum á þessu í fyrra og heldum áfram núna þegar við vorum á Hálsi (gamall bóndabær sem foreldrar hans Hjalta eiga á Snæfellsnesi). Vildi bara sýna ykkur afraksturinn. Skólinn hjá okkur byrjar nú ekki fyrr en 31 ágúst en við ákváðum að skella okkur í ferðalag um suður Svíþjóð. Erum búin að leiga okkur bílaleigubíl (bláan og appelsínugulan með fullt af auglýsingum á) og panta gistingu á þremur farfugla-heimilum. Það verður vonandi gaman að keyra um hérna og skoða sveitirnar. Endilega kvittið þið svo að við vitum nú hverir eru að fylgjast með okkur. |
| Share on Facebook |
| 5 hafa tjáð sig um þessa færslu |
| Gummi Ben sagði klukkan 19:36 þann 23.August 2009 |
| Flott að fá ykkur aftur í Lundinn, velkomin bæði tvö og mikið svakalega er Deutzinn flottur !! Sjáumst fljótlega á röltinu :) |
| Arndís sagði klukkan 22:05 þann 23.August 2009 |
| kvitt kvitt. Við Tumi erum þessa dagana með gesti inn á okkur og mun gestagangurinn vara fram að mánaðamótum. |
| Sandra sagði klukkan 20:00 þann 26.August 2009 |
| ú flottur traktorinn ;) |
| Raggi Frændi sagði klukkan 11:10 þann 27.August 2009 |
| Sagði þér að ég myndi fylgjast með ykkur núna....he he he |
| Björg Ásta sagði klukkan 21:06 þann 27.August 2009 |
| Jahá, voðalega finnst mér þið skötuhjúin dugleg að gera upp þennan myndar traktor.. ;) Skemmtið ykkur vel í ferðalaginu og takiði slattan allan af myndum!! |
| Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu? |
| Nýjustu færslur |
| Eldri færslur | ||||||
|
||||||
| Vinir |




2010 (2)
March (1) .jpg)