Nýjustu færslur
 

Eldri færslur
2010 (2)
March (1)
Farið að vora
January (1)
Ný önn
2009 (18)
December (1)
Jólin bara alveg næstum því að koma
October (1)
Við erum á lífi
August (2)
Roadtrip 2009
Komin aftur til Svíþjóðar
May (1)
Maí
April (3)
Fréttir
Glad Påsk
Sól og sumar
March (3)
Fjólublátt gifs
Silja seinheppna
Söngur vs ískur
February (3)
Bolla, semla, bolla
Heima er best
Flutt á Kjammann
January (4)
Íbúð á Kjammanum
Mamma í heimsókn
Skólinn byrjaður aftur
Á Íslandi er gaman...
2008 (18)
December (1)
Bráðum koma blessuð jólin...
November (4)
Vetur í Lundi
Unnur í heimsókn
Tvö lokapróf og ein aðgerð
HÍ fílingur
October (4)
Fréttir
Prófavika
Heilaskoðun
Fyrsta heimsóknin
September (5)
Loksins
Undur og stórmerki
Verkefnin byrja að streyma
Lífið í Lundi
Sálfræðinámið og akedemískt korter
August (3)
Fréttir af okkur
Komin með sjónvarp og hjól
Komin til Lundar
June (1)
Loksins hipp og kúl
 

Vinir
 


Komin til Lundar
Silja ritaði 20.August 2008

Jæja þá er best að byrja að skrifa.

Við Hjalti komum til Lundar í gær. Eftir að hafa tekið lest  frá Köben og gengið með 70 kg af farangri auk 10 kg af handfarangri á mann og eitt hjól komum við loksins í íbúðina hans Svajunas þar sem við munum búa þar til við fáum íbúð, annað hvort á studentagörðunum eða almenna markaðinum.

Íbúðamálin leystust fyrir þónokkru þar sem læknir sem pabbi hans Hjalta þekkir leyfir okkur að fá svefnherbergi sitt á meðan hann sefur í svefnsófanum í stofunni. Hann er reyndar bara í Lundi aðra hvora viku þar sem hann vinnur einnig í Keflavík. Íbúðin hans er algjörlega miðsvæðis og mjög stutt fyrir okkur að fara í skólan. Hér er allt til alls.

Gengum aðeins um hverfið í gærkvöldi til þess að rata aðeins betur hérna þó að Hjalti rati bara mjög vel hér eftir ferðina okkar 2006 þegar við fórum og skoðuðum Lund með foreldrum hans.

Ég er að fara á fund með skoraformanni og námsráðgjafa og hinum nemendunum sem eru líka teknir inn í seinni hluta námsins núna á eftir kl 14:30 þá kemur vonandi allt í ljós hvernig náminu mínu verður hagað, í hvaða fög ég fer og hversu margar einingar ég tek. Svo á skólinn að byrja að ég held þann 25 ágúst.

Hjalti fer á svipaðann fund á föstudaginn.

Skrifa svo meira seinna.

Share on Facebook
 
4 hafa tjáð sig um þessa færslu
 
Siggi sagði klukkan 13:42 þann 21.August 2008
 
Gott að heyra að þið hafið komist á heilu og höldnu á leiðarenda ! Það virkar eitthvað ekki í tölvunni hjá mér að skoða kommentið á fyrstu færslunni, ég veit ekki af hverju... Hjalti kippir þessu í liðinn -Siggi
 
Hróðný sagði klukkan 17:07 þann 21.August 2008
 
Hæ, hæ elsku þið. Langt síðan síðast...ég veit...en mig langaði bara til að kvitta fyrir mig hérna á síðunni ykkar. Frábært hjá ykkur að fara til Svíþjóðar í skóla...alltaf gaman að breyta til (þið þekkið Svíðþjóð auðvitað mjög vel sem hlýtur að vera stór plús). Knús, Hróðný (gamla Kvennóvinkona).
 
Sandra Björg sagði klukkan 23:21 þann 21.August 2008
 
Hæhæ! Jæja hvernig gekk svo fundurinn? Hlakka til að heyra allt um allt! Át þessa dýrindis súkkulaðiköku áðan og var hugsað til þín - og já svo rak ég auðvitað augun í bókina þína Silja sem ég er nota bene búin að lesa en steingleymdi að skila! :/ Alveg útúr kú (en samt eitthvað svo týpískt ég) Heyrumst vonandi bráðlega skvísós :)
 
Björg Ásta sagði klukkan 08:44 þann 22.August 2008
 
Gaman að sjá að þið eruð með blogg, þá getur maður fylgst aðeins með ykkur þarna út útlöndum. En annars gott að vita að þið eruð komin á leiðarenda og vonandi gekk fundurinn vel hjá þér Silja. Ég verð dugleg að kíkja á síðuna og fylgjast með þannig að þú verður að vera dugleg að skrifa ;) heyrumst síðar.
 
Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu?
 
Stjórnborð