| Farið að vora |
| Silja ritaði 4.March 2010 |
Æj við erum eitthvað voða léleg að blogga núna. Enda gerist svosem ekkert voða mikið spennandi hérna úti. Loksins er snjórin að bráðna hérna, búið að vera snjór hérna í Lundi frá því í Desember. Maður var orðin frekar þreyttur á því að alltaf vera blautur í fæturna og inni snjóaður. Nú getum við bráðum farið að hjóla, við erum nefnilega ekki eins og hinir vitleysingarnir sem hjóla í hálfum meter af snjó sem spóla bara áfram og geta ekki bremsað. Enda reyslunni rikari eftir flugferð mína hérna fyrir bráðum einu ári síðan, þá var reyndar ekki snjór en ég er nógu fötluð eftir það slys þrátt fyrir að vorið var komið. Ég er í áfanga sem heitir Eigindleg aðferðfræði í rannsóknum. Er eiginlega að klepra í þessum áfanga, mér finnst hann barasta ekkert skemmtilegur auk þess sem hann minnir mjög mikið á Sögu sálfræðinnar (fyrir þá sem þekkja þann áfanga) – allskonar heimsspekilegar kenningar sem ég á ekki alveg samleið með. Sem betur fer er þessi áfangi stuttur og er að klárast í næstu viku. Þá tekur við langur og stór áfangi í Vinnu- og skipulagssálfræði. Sá áfangi hljómar spennandi en maður fréttir af því að það sé brálað að gera í þessum áfanga. Svo er spurning hversu mikið það í rauninni sé, þar sem vinnuálagið í flestum áföngum hérna úti hefur nú ekki einu sinni tærnar þar sem áfangar í HÍ hefur hælana. Við byrjum á því að fara í gegnum allar kenningarnar og kynna okkur vinnubrögð og aðferðafræði Vinnusálfræðinnar. Svo á næstu önn förum við út í fyrirtæki sem ráðgjafar og nýtum okkur þekkingu okkar. Hljómar spennó er það ekki? Hjalti stendur sig vel í að skjóta mann og annan (jafnvel geimverur) í tölvuleikjunum sem hann er í núna þessa dagana. Enda ansi rólegt hjá honum þessa önn eins og fram hefur komið áður. Hann var nú reyndar á fundi með einum prófessor í dag varðandi mastersverkefni, sá ætlaði að reyna grafa upp einhver skemmtileg verkefni fyrir hann. Var nú búin að lofa Svíastaðreyndir í einhverri færslu hérna fyrir löngu. Ætla að koma með eina. Það er venjan að spurja einhvern „hvernig hann hefur það í dag “(Hur har du det i dag?) þegar maður hittist hérna í Svíþjóð, flestir ef ekki allir Svíar sem ég þekki svara: „ Ég hef það fínt, er reyndar svolitið þreyttur“ („Jag har det bra men jag är lite trött“). Ég get orðið alveg brjáluð á þessu svari. Svíar eru alltaf þreyttir. Veit ekki hvort að það sé vegna þess að flestir Svíar sem ég þekki eru stúdentar og djamma langt fram á nóttunni því að ekki læra þeir langt fram eftir. Kannski er bara ætlast til þess að maður svari svona og að þeir vilja fá smá samúð. Ég svara allavegana ekki að ég sé þreytt enda er ég það ekki og stundum segi ég við þá sem ég þekki vel: „já ertu ekki að taka vitamínin þín“ þegar ég fæ þetta svar. Svo fáum við fyrstu Íslands heimsóknina þetta árið, núna eftir tvær vikur. Mamma og pabbi ætla að koma og rúnta um í Lundi og Skáni í nokkra daga. Það verður gaman að fá gesti. |
| Share on Facebook |
| Enginn hefur tjáð sig um þessa færslu |
| Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu? |
| Nýjustu færslur |
| Eldri færslur | ||||||
|
||||||
| Vinir |




2010 (2)
March (1)