| Tvö lokapróf og ein aðgerð |
| Silja ritaði 5.November 2008 |
Jæja komið þið sæl og blessuð. Núna er komið að lokaprófinu í Taugasálfræðinni, tíminn líður alveg svakalega hratt, jísus. Fer í það þriðjudaginn 11 nóv. Veit ekki alveg hvort þetta verður erfitt en þetta er alla vegna mikið efni og ég held að maður þurfi að kunna þetta frekar vel. Vona að þetta gangi nú bara vel. Svo fer ég í annað lokapróf þann 25 nóv. Þar sem ég er á fullu að lesa fyrir hitt prófið þá hef ég ekki mikinn tíma fyrir þetta próf en sem betur fer ákvað bekkurinn að skipta niður efninu og hver og einn gerir samantekt úr sínum kafla og deilir með hinum. Nú verð ég því að treysta á því að fólkið sé duglegt að glósa niður öll mikilvægu atriðin svo að ég geti lesið það seinna og að mér gengið vonandi vel á prófinu.
Þið sem hafið þekkt mig seinustu árin hafið kannski tekið eftir því að ég hef gengið í gegnum eins konar mútur - þar sem röddin brestur við skemmtilegustu tilfelli. Síðasta ár er ég búin að vera hás og átt i erfiðleikum við að tala og þá sérstaklega þegar það er mikill hávaði. Ég tel að fólk nenni ekki að tala við mig i samkvæmum því að það heyrir einfaldlega ekki hvað ég segi. Fór til læknis í sumar heima og hann sagði mér bara að þegja i viku og taka lyf við bakflæði. Ég sagðist nú ekki geta þagað i heila viku en að ég gæti nú tekið lyfin. Fjölskyldu minni fannst þetta afar fyndið og spurði mig oft - Silja áttir þú ekki að þegja? En jæja ég hef haldið áfram að vera hás hérna úti og átt i miklum erfiðleikum að tala suma dagana. Ákvað því að leita til læknis hérna. Var hjá lækninum i dag eftir mánaðarbið plús viku vegna klúður hjá mér (missti af tímanum sem mér var úthlutað vegna klaufaskaps- hélt að ég átti að mæta á öðrum degi þannig að ég mætti sólahring of seint). Niðurstaða þessarar læknisheimsóknar er að ég þarf að fara í aðgerð. Ég er með vírus sýkingu sem hefur valdið blöðrum/kúlum (eða baunum eins og læknirinn orðaði það) á raddböndunum hjá mér og það þarf að skera/klippa þær burt. Veit ekki hvenær ég fer í þessa aðgerð en fer þá vonandi að geta talað almennilega og fólk að hlusta á mig. Svo kemur Unnur í heimsókn í næstu viku. Er svosem ekki búin að skipuleggja neina dagsskrá en ég hugsa að við skoðum Lund og Malmö. Svo hef ég boðið Líneyju vinkonu hennar sem er hérna líka í námi og kærasta hennar i mat á föstudaginn. Það veður eflaust gaman hjá okkur, mikið spjallað og loksins verðum við fleiri en tvö i kvöldmat. |
| Share on Facebook |
| 5 hafa tjáð sig um þessa færslu |
| Arndís sagði klukkan 14:13 þann 6.November 2008 |
| Þurfti Birgitta Haukdal ekki að fara í aðgerð út af svipuðu vandamáli??? |
| Silja sagði klukkan 14:32 þann 6.November 2008 |
| Jú þetta er þekkt vandamál hjá söngvurum og þeim sem tala mjög mikið ;) |
| Sigga sagði klukkan 19:37 þann 10.November 2008 |
| hehehehehe....og greyið þú, gætir þurft að þegja soltið lengi eftir aðgerðina ;) |
| M + P sagði klukkan 22:41 þann 11.November 2008 |
| Hae, vonandi hefur lesturinn og profid gengid vel, varstu ekki i tvi i dag, vid erum ekki alveg attud a stad og stund her i Mexico, enda erum vid 7 timum a undan ykkur. erum buin ad gera fullt, fara i 4 kafandi, sja skjalbokur, kolkrabba og alla gullfiskana. Einnig hofum vid skodad Maya-rustir ofl. vid munum leggja af stad heim a sunnudaginn naeista. vona ad tid Unnur skemmtid ykkur vel og hafid tad gott. knus og kram M o P |
| Lydía lilla syss sagði klukkan 16:32 þann 12.November 2008 |
| Hæ sætapar! Hvernig gékk í prófinu í gær Silja? Vonandi gengur allt vel hjá ykkur :D er kannski kominn snjór lika?? Hérna er allt byrjað að jólaskreytsat en enginn snjór.. mér er farið að hlakka svakalega til jóla!!! Viltu láta mig vita hvenær þú ferð í aðgerðina þegar þú veist það alrægt? Ást og umhyggja Lydía :D ;* |
| Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu? |
| Nýjustu færslur |
| Eldri færslur | |||||||||||||||
|
|||||||||||||||
| Vinir |




2010 (2)
2008 (18)