| Fjólublátt gifs |
| Silja ritaði 23.March 2009 |
Þið viljið kannski fá smá fréttir af mér. Núna er akkúrat orðin tvær vikur síðan ég fór í flugferð á hjólinu mínu og ævintýrið hófst. Er orðin ansi kunnug á spítalanum á þessum tíma enda margar heimsóknir þangað og ekki eru þær búnar í bráð. Ég er reyndar eiginlega hætt að nenna þessu og væri til að spóla áfram kannski mánuð eða svo enda ekki hægt að koma sér þægilega fyrir með eitthvað drasl á hendinni. Auk þess held ég að Hjalta finnist nú ekkert svakalega gaman að búa með ósjálfbjarga manneskju sem getur ekki einu sinni klætt sig sjálf. Það var ósköp gott að fá hana mömmu hingað til að hjálpa mér. Hún stóð sig eins og hetja, fór meira að segja í H&M og keypti næstum því bara peysur á mig og bara einn litin bol á sig. Það er nefnilega ekki hægt að fara í hvaða peysu sem er þegar maður er með stórt flykki á hendinni. Mamma fékk líka smá reynslu af spítalanum, þar sem hún beið með mér í 7 tíma á bráðavaktinni á laugardagsnóttinni 14/3 því að ég fékk ofnæmisviðbrögð undan gifsinu, fékk nýtt gifs (þriðja gifsið á þessum tíma) og varð aðeins betri af kláðanum. Svo fór ég núna á föstudaginn og fékk nýtt gifs, fékk meira að segja að velja lit, rautt, blátt eða fjólublátt. Ég valdi fjólublátt því að það passaði fötin sem get verið í núna. Þetta er sem sé fjórða gifsið mitt á þessum tveimur vikum en það er of þröngt yfir úlnliðinn og meiðir mig og ég er að fara á spítalann á morgun og fæ þá kannski nýtt gifs, ætti ég kannski að fá mér annan lit, eða hvað finnst ykkur? Mér hefur nú farið fram á þessum tíma, þá aðallega á vinstri hendi, er orðin ansi fljót að skrifa á tölvuna með vinstri og meira segja farin að geta smurt mér samloku, en ekki með osti á því að það þarf meiri færni og jafnvel tvær hendur til þess að skera sér ostasneið.
Svo vorkenndi Hjalti mér svo mikið að hann náði sér bara í einhverja pest, þannig að við erum bæði búin að vera eins og druslur hérna um helgina. Við fengum reyndar mjög skemmtilega heimsókn gær. Það var kisa fyrir utan sem vældi og vældi og vildi komast inn úr rigningunni, enginn ól og ekkert merkt en ósköp góð og kelin. Hún fékk að koma inn og lagðist í skrifborðsstólin hans Hjalta (stóllinn hans Pésa) og svaf þar til núna rétt fyrir hádegið þegar hún fór út og vonandi heim til sín aftur. |
| Share on Facebook |
| 5 hafa tjáð sig um þessa færslu |
| Marta Frænka sagði klukkan 12:28 þann 23.March 2009 |
| Æj greyjið mitt .. Vona að þér batni sem fyrst .. það er ekki hættulaust að eiga reiðhjól .. ;) Knús á þig stóra frænka : ) |
| Unnur sagði klukkan 13:16 þann 23.March 2009 |
| Ég vona nú að þeir fari að setja á þig almennilegt gifs sem verður ekki til meiri vandræða :D fjólublátt er geggjað, ættir að fá þér aftur svoleiði...tótallí í tísku núna! Voðalega er þetta sæt kisa :) Hefur ekki verið leiðinlegt að fá hana í heimsókn. Láttu þér batna!!! |
| Arndís sagði klukkan 16:04 þann 23.March 2009 |
| H&M er miklu ódýrari í Svíþjóð en hér í Danmörku (fórum með gestum yfir til Málmeyjar í síðustu viku). Hvað segja læknarnir að þú þurfir að vera lengi í gipsinu? Ég vona að þið hafið það annars gott. Bestu kveðjur, Arndís |
| sigga sagði klukkan 16:34 þann 3.April 2009 |
| oh...mig langar að fá svona litað gips í mína vinnu...bara til svona leiðinleg hvít hérna ;) Vona að þið hjúin farið nú að skríða saman... |
| lydía syss sagði klukkan 18:04 þann 3.April 2009 |
| jæjja hvernig gekk rönkenin og sonna :) og hvað er að frétta?? knússs |
| Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu? |
| Nýjustu færslur |
| Eldri færslur | ||||||
|
||||||
| Vinir |




2010 (2)
March (1)
Er búin að komast að nokkru atriðum á þessum tíma, maður verður að vera í pilsi eða kjól því að maður biður nú ekki hvern sem er að koma með sér á klóið og hneppa frá og að buxunum sínum. Maður þarf að sofa mikið, en ég er nú komin niður í eina kríu yfir daginn núna. Það er staðið upp fyrir manni i strætó og allir bjóðast til að hjálpa. Maður fær mikla vorkun og alltaf sömu spurninguna, hvað gerðist eiginlega?, eða, varstu að slást?