| Jólin bara alveg næstum því að koma |
| Silja ritaði 16.December 2009 |
Jæja þá kemur loksins smá færsla, við erum búin að vera hryllilega léleg að blogga þessa önn. Smá svona yfirlit yfir önnina. Ég bara búin að vinna alla daga í starfsþjálfuninni minni á BUGL og líkar mjög vel. Tíminn er búin að fljúga áfram og mér finnst ég ekkert vera heima hjá mér enda að heiman 11 klst á dag. Kem heim um kvöldið og hef þá bara verið að dútla mér og svo er bara komin nótt og svo aftur næsti dagur. Mér finnst eins og það sé kannski svona lok október en svo er víst ekki. Það er líka búið að vera svo hlýtt hérna úti þannig að manni finnst það ekki vera komin jól. Ég skaust í óvænta heimsókn í tvo sólahringa heim til Íslands í lok október þegar pabbi minn varð fimmtugur. Skemmtilegt að geta komið fólki svona á óvart og maður verður nú að nýta tækifærið þegar maður getur plottað svona. Hjalti varð eftir í Svíþjóð þar sem hann var í prófum akkúrat þá. Fyrir þá sem hafa ekki frétt af því erum við Hjalti komin með fjögurra herbergja íbúð á Kjammanum. Við fáum hana 1 jan en við vorum reyndar búin að semja við stelpuna sem býr þar núna að flytja dótið okkar inn fyrr. Þetta gerðum við í gær og nú búum við í tómri íbúð með tvær dýnur á gólfinu og föt í ferðatöskum. Fengum nokkra hrausta íslenska karlmenn til þess að hjálpa okkur og flutningurinn tók nú bara tæplega klukkutíma. Sænska vinkona mín Ida, sem reyndi að hjálpa okkur, var nú alveg hissa á hvað íslendingar væru duglegir og fljótir að þessu. Þannig að nú er nóg af plássi hjá okkur fyrir þá sem vilja koma til Svíþjóðar að eyða peningum sinum i H&M eða hitta okkur Þannig að nú sofum við bara á golfinu fram á föstudag þegar við þurfum að skila af okkur þessari íbúð. Ætlum svo eflaust að kíkja yfir til Köben eina nótt og komum svo til Íslands á sunnudaginn. Sjáumst bráðum og gleiðileg jól. |
| Share on Facebook |
| Enginn hefur tjáð sig um þessa færslu |
| Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu? |
| Nýjustu færslur |
| Eldri færslur | ||||||||||||||
|
||||||||||||||
| Vinir |




2010 (2)
2009 (18) 