Nýjustu færslur
 

Eldri færslur
2010 (2)
March (1)
Farið að vora
January (1)
Ný önn
2009 (18)
December (1)
Jólin bara alveg næstum því að koma
October (1)
Við erum á lífi
August (2)
Roadtrip 2009
Komin aftur til Svíþjóðar
May (1)
Maí
April (3)
Fréttir
Glad Påsk
Sól og sumar
March (3)
Fjólublátt gifs
Silja seinheppna
Söngur vs ískur
February (3)
Bolla, semla, bolla
Heima er best
Flutt á Kjammann
January (4)
Íbúð á Kjammanum
Mamma í heimsókn
Skólinn byrjaður aftur
Á Íslandi er gaman...
2008 (18)
December (1)
Bráðum koma blessuð jólin...
November (4)
Vetur í Lundi
Unnur í heimsókn
Tvö lokapróf og ein aðgerð
HÍ fílingur
October (4)
Fréttir
Prófavika
Heilaskoðun
Fyrsta heimsóknin
September (5)
Loksins
Undur og stórmerki
Verkefnin byrja að streyma
Lífið í Lundi
Sálfræðinámið og akedemískt korter
August (3)
Fréttir af okkur
Komin með sjónvarp og hjól
Komin til Lundar
June (1)
Loksins hipp og kúl
 

Vinir
 


Jólin bara alveg næstum því að koma
Silja ritaði 16.December 2009

Jæja þá kemur loksins smá færsla, við erum búin að vera hryllilega léleg að blogga þessa önn.

Smá svona yfirlit yfir önnina.
Hjalti er búin að vinna ýmis hópverkefni í skólanum þessa önn. Þar á meðal segway úr Lego Mindstorm og jafnvel hendir hann inn myndband af því bráðlega. Hann er núna í prófum og klárar á laugardaginn.

Ég bara búin að vinna alla daga í starfsþjálfuninni minni á BUGL og líkar mjög vel. Tíminn er búin að fljúga áfram og mér finnst ég ekkert vera heima hjá mér enda að heiman 11 klst á dag. Kem heim um kvöldið og hef þá bara verið að dútla mér og svo er bara komin nótt og svo aftur næsti dagur. Mér finnst eins og það sé kannski svona lok október en svo er víst ekki. Það er líka búið að vera svo hlýtt hérna úti þannig að manni finnst það ekki vera komin jól.

Ég skaust í óvænta heimsókn í tvo sólahringa heim til Íslands í lok október þegar pabbi minn varð fimmtugur. Skemmtilegt að geta komið fólki svona á óvart og maður verður nú að nýta tækifærið þegar maður getur plottað svona. Hjalti varð eftir í Svíþjóð þar sem hann var í prófum akkúrat þá.

Fyrir þá sem hafa ekki frétt af því erum við Hjalti komin með fjögurra herbergja íbúð á Kjammanum. Við fáum hana 1 jan en við vorum reyndar búin að semja við stelpuna sem býr þar núna að flytja dótið okkar inn fyrr. Þetta gerðum við í gær og nú búum við í tómri íbúð með tvær dýnur á gólfinu og föt í ferðatöskum. Fengum nokkra hrausta íslenska karlmenn til þess að hjálpa okkur og flutningurinn tók nú bara tæplega klukkutíma. Sænska vinkona mín Ida, sem reyndi að hjálpa okkur, var nú alveg hissa á hvað íslendingar væru duglegir og fljótir að þessu. Þannig að nú er nóg af plássi hjá okkur fyrir þá sem vilja koma til Svíþjóðar að eyða peningum sinum i H&M eða hitta okkur 

Þannig að nú sofum við bara á golfinu fram á föstudag þegar við þurfum að skila af okkur þessari íbúð. Ætlum svo eflaust að kíkja yfir til Köben eina nótt og komum svo til Íslands á sunnudaginn. 

Sjáumst bráðum og gleiðileg jól.

Share on Facebook
 
Enginn hefur tjáð sig um þessa færslu
 
Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu?
 
Stjórnborð