| Við erum á lífi |
| Silja ritaði 4.October 2009 |
Já ég veit að við erum ekki búin að blogga í mjög langan tíma, skamm skamm, við erum samt á lífi. Búið að vera mikið að gera hjá okkur báðum í skólanum (sænskt “mikið að gera” ekki íslenskt). Ég var að klára áfanga núna á fimmtudaginn og byrja svo á mánudaginn að leika sálfræðing í 15 vikur. Er að fara í starfsþjálfun og á endanum lenti ég á BUGL í Eslöv sem er aðeins fyrir utan Lund (10 mín í lest). Er alveg rosalega ánægð að hafa lent á þarna því að ég fékk ekkert af óskunum mínum þegar við fengum að “velja” meðal þeirra plássa sem voru í boði. Fékk til að byrja með skóla hérna í Lundi sem ég var svo sem ánægð með en vildi mun frekar vera á BUGLi (eins og allir í bekknum mínum). Svo datt þetta pláss inn, nokkrum dögum seinna og ég hringdi eins og skot og plássið var mitt (enda gilti: fyrstur kemur fyrstur fær eða först till kvarn eins og Svíarnir segja). Þannig að nú verð ég “fullorðin” í 15 vikur og fer í vinnu frá 8 til 16:30. Versta við þetta er að ég þarf að vakna kl 6 til þess að geta náð strætó til þess að ná lestinni minni sem fer korter yfir 7 (svona er þetta að vera ekki á bíl hérna úti enda tæki það bara korter að keyra til Eslöv en jæja maður veður vist að aðlagast sænska lífinu = að pendla). Það sem Hjalti er að gera núna í skólanum er mest verkefna vinna og stýritækni tengd því og hann ætlar að segja ykkur frá verkefnunum síðar (næsta blogg). Það er búið að vera alveg rosalega gott veður hérna í Lundi alveg þar til fyrir viku síðan, næstum því alltaf yfir 17 °C og sól og blíða en núna er haustið komið og það rignir og veðurfræðingarnir vara við stormi (bara smá rok finnst mér nú enda vön íslenska veðrinu). Skemmtilegasta við rokið er að við erum með fullt af grænum póstkössum út í garði (fyrir utan svefnherbergisgluggann okkar) og þegar það er rok þá blæs lokið á þeim upp og svo skellist það aftur, þetta er því hálfgerður kór af póstkassasöng sem syngur ekki bestu vögguvísuna sem við höfum heyrt (miður skemmtilegt). Við erum búin að kaupa okkur flug heim um jólin, alveg svakalegt hvað flugfélögin ætla að græða á litlu fátæku námsmönnunum sem vilja vera hjá fjölskyldunum sínum á Íslandi um jólin. Þannig að ekki búast við jólagjöfum frá okkur í ár frekar en í fyrra, voða þægilegt að geta bara gefið sjálfan sig í jólagjöf þar sem það er hundleiðinlegt að þurfa að finna jólagjafir fyrir fólk sem á allt. Alla veganna komum við heim 20 des. og förum svo út aftur 4 jan. Fyrir þá sem eru ekki búnir að taka eftir því á smettisskruddunni þá erum við komin með flickr síðu og setjum þar inn myndir sem við höfum tekið á nýju fínu myndavélinni okkar. Áhugasömum er bent á að skoða http://www.flickr.com/photos/hjalti_silja
Mér datt í hug að fræða ykkur um Svía aðeins hérna á blogginu okkar. Hérna kemur fyrsti búturinn: |
| Share on Facebook |
| Enginn hefur tjáð sig um þessa færslu |
| Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu? |
| Nýjustu færslur |
| Eldri færslur | ||||||||||||||
|
||||||||||||||
| Vinir |




2010 (2)
2009 (18) 