Nýjustu færslur
 

Eldri færslur
2010 (2)
March (1)
Farið að vora
January (1)
Ný önn
2009 (18)
December (1)
Jólin bara alveg næstum því að koma
October (1)
Við erum á lífi
August (2)
Roadtrip 2009
Komin aftur til Svíþjóðar
May (1)
Maí
April (3)
Fréttir
Glad Påsk
Sól og sumar
March (3)
Fjólublátt gifs
Silja seinheppna
Söngur vs ískur
February (3)
Bolla, semla, bolla
Heima er best
Flutt á Kjammann
January (4)
Íbúð á Kjammanum
Mamma í heimsókn
Skólinn byrjaður aftur
Á Íslandi er gaman...
2008 (18)
December (1)
Bráðum koma blessuð jólin...
November (4)
Vetur í Lundi
Unnur í heimsókn
Tvö lokapróf og ein aðgerð
HÍ fílingur
October (4)
Fréttir
Prófavika
Heilaskoðun
Fyrsta heimsóknin
September (5)
Loksins
Undur og stórmerki
Verkefnin byrja að streyma
Lífið í Lundi
Sálfræðinámið og akedemískt korter
August (3)
Fréttir af okkur
Komin með sjónvarp og hjól
Komin til Lundar
June (1)
Loksins hipp og kúl
 

Vinir
 


Við erum á lífi
Silja ritaði 4.October 2009

Já ég veit að við erum ekki búin að blogga í mjög langan tíma, skamm skamm, við erum samt á lífi. Búið að vera mikið að gera hjá okkur báðum í skólanum (sænskt “mikið að gera” ekki íslenskt).

Ég var að klára áfanga núna á fimmtudaginn og byrja svo á mánudaginn að leika sálfræðing í 15 vikur. Er að fara í starfsþjálfun og á endanum lenti ég á BUGL í Eslöv sem er aðeins fyrir utan Lund (10 mín í lest). Er alveg rosalega ánægð að hafa lent á þarna því að ég fékk ekkert af óskunum mínum þegar við fengum að “velja” meðal þeirra plássa sem voru í boði. Fékk til að byrja með skóla hérna í Lundi sem ég var svo sem ánægð með en vildi mun frekar vera á BUGLi (eins og allir í bekknum mínum). Svo datt þetta pláss inn, nokkrum dögum seinna og ég hringdi eins og skot og plássið var mitt (enda gilti: fyrstur kemur fyrstur fær eða först till kvarn eins og Svíarnir segja). Þannig að nú verð ég “fullorðin” í 15 vikur og fer í vinnu frá 8 til 16:30. Versta við þetta er að ég þarf að vakna kl 6 til þess að geta náð strætó til þess að ná lestinni minni sem fer korter yfir 7 (svona er þetta að vera ekki á bíl hérna úti enda tæki það bara korter að keyra til Eslöv en jæja maður veður vist að aðlagast sænska lífinu = að pendla).

Það sem Hjalti er að gera núna í skólanum er mest verkefna vinna og stýritækni tengd því og hann ætlar að segja ykkur frá verkefnunum síðar (næsta blogg). Ein af myndunum á flickr síðunni okkar

Það er búið að vera alveg rosalega gott veður hérna í Lundi alveg þar til fyrir viku síðan, næstum því alltaf yfir 17 °C og sól og blíða en núna er haustið komið og það rignir og veðurfræðingarnir vara við stormi (bara smá rok finnst mér nú enda vön íslenska veðrinu). Skemmtilegasta við rokið er að við erum með fullt af grænum póstkössum út í garði (fyrir utan svefnherbergisgluggann okkar) og þegar það er rok þá blæs lokið á þeim upp og svo skellist það aftur, þetta er því hálfgerður kór af póstkassasöng sem syngur ekki bestu vögguvísuna sem við höfum heyrt (miður skemmtilegt).

Við erum búin að kaupa okkur flug heim um jólin, alveg svakalegt hvað flugfélögin ætla að græða á litlu fátæku námsmönnunum sem vilja vera hjá fjölskyldunum sínum á Íslandi um jólin. Þannig að ekki búast við jólagjöfum frá okkur í ár frekar en í fyrra, voða þægilegt að geta bara gefið sjálfan sig í jólagjöf þar sem það er hundleiðinlegt að þurfa að finna jólagjafir fyrir fólk sem á allt. Alla veganna komum við heim 20 des. og förum svo út aftur 4 jan.

Fyrir þá sem eru ekki búnir að taka eftir því á smettisskruddunni þá erum við komin með flickr síðu og setjum þar inn myndir sem við höfum tekið á nýju fínu myndavélinni okkar. Áhugasömum er bent á að skoða http://www.flickr.com/photos/hjalti_silja

 

Mér datt í hug að fræða ykkur um Svía aðeins hérna á blogginu okkar. Hérna kemur fyrsti búturinn:
Þegar Svíar hitta fólk sem það þekkir vel, knúsast þeir (alveg eins og þegar íslendingar leggja kinn við kinn og kyssa út í loftið). Mér finnst þetta oft vera voðalega væmnir knúsar því að þeir taka ekki í, heldur rétt svo leggja hendurnar yfir hvorn annan. Svo finnst mér það mjög fyndið að þegar maður skrifar SMS eða tölvupóst til vina sinna hérna í Svíþjóð þá skrifar maður oftast Kram (knús) í lokin af skilaboðinu, svona hálfgerð kveðja. Svo þegar Svíin byrjar að deita einhvern og það byrjar að verða alvarlegt þá skrifa þeir í staðinn Puss (koss), jafnvel segja þeir þetta þegar þeir tala við manneskjuna í síma og kveðjast þá með því að segja Puss puss. Þannig að ef þú ert að tala við Svía (á email eða SMS) og hann segir puss í lokin á samræður ykkar þá veistu að honum þykir vænna um þig en ef hann myndi segja kram og þú veist þá í hvaða átt sambandið ykkar þróast. Stundum fara þeir samt líka millivegin og segja Puss och kram. Veit ekki hvort ég hef einhvern tíman heyrt íslending segja koss koss í símann við einhvern sem hann er að deita.

Share on Facebook
 
Enginn hefur tjáð sig um þessa færslu
 
Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu?
 
Stjórnborð