Nýjustu færslur
 

Eldri færslur
2010 (2)
March (1)
Farið að vora
January (1)
Ný önn
2009 (18)
December (1)
Jólin bara alveg næstum því að koma
October (1)
Við erum á lífi
August (2)
Roadtrip 2009
Komin aftur til Svíþjóðar
May (1)
Maí
April (3)
Fréttir
Glad Påsk
Sól og sumar
March (3)
Fjólublátt gifs
Silja seinheppna
Söngur vs ískur
February (3)
Bolla, semla, bolla
Heima er best
Flutt á Kjammann
January (4)
Íbúð á Kjammanum
Mamma í heimsókn
Skólinn byrjaður aftur
Á Íslandi er gaman...
2008 (18)
December (1)
Bráðum koma blessuð jólin...
November (4)
Vetur í Lundi
Unnur í heimsókn
Tvö lokapróf og ein aðgerð
HÍ fílingur
October (4)
Fréttir
Prófavika
Heilaskoðun
Fyrsta heimsóknin
September (5)
Loksins
Undur og stórmerki
Verkefnin byrja að streyma
Lífið í Lundi
Sálfræðinámið og akedemískt korter
August (3)
Fréttir af okkur
Komin með sjónvarp og hjól
Komin til Lundar
June (1)
Loksins hipp og kúl
 

Vinir
 


Bráðum koma blessuð jólin...
Silja ritaði 8.December 2008

Héðan frá Lundi er allt gott að frétta. Það gerist svosem ósköp litið þessa dagana, við lærum, borðum, sofum og förum í skólann. Hjalti er á fullu í próflestri. Hann fer í tvö próf á miðvikudaginn og svo tvö próf í næstu viku. Ég er nú orðin frekar spennt að koma heim eftir bara 10 daga (er meira segja byrjuð að pakka, en bara smá) og hugurinn er á Íslandi.

Var nú reyndar í fríi núna um helgina og fór í smá verslunarleiðangur út í Nova Lund (verslunarmiðstöð). Náði nú að eyða smá pening í H&M en það er ekki eins gaman að fara í H&M núna því að ég get alltaf skroppið í búðina. Allt annað þegar maður þarf að fljúga yfir haf til þess að fara í H&M. Svo var ég líka kisupössunarpía fyrir bekkjasystur mína, þannig að ég fékk aðeins að kúra með Elvis (kisunni) á laugardaginn. Versta var að hann prumpaði svakalega mikið en ástæðan fyrir því er að hann fær ekki alvöru mat heldur bara Whiskas og það er eins og við myndum borða hamborgara og franskar alla daga.

Skreytt tré á ClementstorgiHér er nú ekkert svakalega jólalegt, svíin skreytir nú ekkert mikið og þá bara með hvítum seríum, aðventuljós og stjörnur – það verður allt að vera svo stílhreint hjá þeim. Auk þess slökkva þeir svo á jólaseríunum á nóttinni. Borgin skreytir líka bara með hvítum perum og það er slökkt á þeim skreytingum yfir daginn en kveikt á þeim þegar það fer að rökkva og á nóttunni.

Var að byrja í nýjum áfanga í dag, meðferðafræði með hugræna áherslu, skemmtilegast við þann áfanga er að sá sem er aðalkennarinn er íslendingur. Þetta er mjög áhugaverður áfangi en verð nú líklegast að læra smá í jólafríinu.

Uppdate: það er ekkert að frétta af húsnæðismálum hjá okkur. Búum ennþá hjá Svajunasi og fötin okkar eru ennþá í ferðatöskunum og allir kassarnir með dótið okkar hjá foreldrum hans Hjalta.

Hugsa nú að bloggið fari í jólafrí núna þar sem við erum að fara að hitta flest ykkur sem lesa þetta blogg bráðlega. 

Share on Facebook
 
2 hafa tjáð sig um þessa færslu
 
pabbi sagði klukkan 10:41 þann 11.December 2008
 
það verður nú gaman að fá ykkur heim hér er allt orðið upplýst af marglituðum skreitingum grettir saknar mikið nætur knúss því hann notar hvert tækifæri að stelast inn í svefnherb kv
 
Unnur Ósk sagði klukkan 19:09 þann 13.December 2008
 
Hlakka mikið til að sjá ykkur :D
 
Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu?
 
Stjórnborð