Jæja þá er seinasta kvöldið okkar á Íslandi komið. Við erum búin að hafa það alveg óskaplega gott. Við erum búin að borða mikið af kjöti, nammi, kökum og kræsingum. Búin að hitta MH-liðið, sálfræðifólkið, kvennófólkið, verkfræðimafíuna, allskonar vini og fullt af öðru skemmtilegu fólki eins og fjölskyldurnar okkar. Við erum búin að fara í mörg matarboð og þar má meðal annars nefna tvö skötuboð á Þorláksmessu, jóladagsboðið hjá ömmu Gunnu og afa Sturlu – Silju móðurætt, áramótaboð, afgangamatarboð. Fórum svo líka í stórt ættarboð í fjölskyldunni minni. Við erum líka búin að snúa sólahringinum við, baka laufabrauð, prjóna vettlinga (þá aðallega Silja), klára eitt heimapróf (hér er átt við Silju líka), hanga í töl vunni og Playstation (hér er þá aðallega átt við Hjalta), sinna allskonar tölvu-vandræðum (aðallega Hjalti en Silja er orðin ansi sleip í þessu líka), spila Cluedo (mælum með því spili), Catan og Risk. Svo lagaði Hjalti líka bílinn okkar.
Já við höfum gert margt í jólafríinu enda ekki hægt að kalla frí þegar maður kemur svona heim í stutta stund, því að maður þarf að sinna svo mörgum skylduheimsóknum. Við þökkum því alveg kærlega fyrir okkur og þetta hafa verið æðislegar tvær og hálfa viku, algjör orku-spýting. Svo sjáumst við í maí aftur.
Ég þurfti nú reyndar að læra smávegis núna í jólafríinu og náði að klára heimaprófið og búin að lesa fyrir annan umræðutíma sem hópurinn minn þarf að vera með kynningu í ( 8 jan.), svo mun ég lesa fyrir umræðutímann sem er 7 jan. í fluginu. Þannig að nú er bara að hoppa inn í skólagírinn því að nú taka við tvær vikur hjá mér þar sem ég er skólanum á hverjum degi og verkefni og heimapróf sem fylgja því og svo er önnin búin hjá mér. Næsta önn byrjar svo 19 jan. en sú önn verður nú mun rólegri en haustönnin. Svo fékk ég tíma fyrir aðgerðina mína 20 janúar og svo kemur mamma í heimsókn og á ráðstefnu þann 22 janúar. Hjalti er að fara í eitt lokapróf núna þann 12 janúar þar sem þetta próf var á sama tíma og annað lokapróf í desember og svo byrjar önnin hans þann 14 janúar.
Set myndir inn seinna á heimasíðuna, en þeir sem eru vinir minir á facebook geta séð myndir frá jólumnum. |