| Flutt á Kjammann |
| Silja ritaði 9.February 2009 |
Eins og ég skrifaði síðast þá fórum við í Ikea á laugardaginn(31/1) og svo ætluðum við að kaupa rúm í Rúmfatalagerinum (Rfl) á sunnudeginum. Þegar við komum út í Nova Lund (verslunarmiðstöðina) sáum við að það var útsala í rúmabúðinni Sängjätten, sem er búð sem er nánast við hliðina á Rfl. Ákváðum að fara að skoða en ég sagði við Hjalta að ef það eru engar verðmerkingar (= mjög dýr rúm) þá skulum við fara út úr búðinni. Funum ódýrasta rúmið þarna inni á sama verð og rúmið sem við ætluðum að kaupa í Rfl. Keyptum því þetta fína rúm og það kom svo á þriðjudaginn til okkar. Fengum íbúðina afhenta á mánudaginn, Hjalti fór og sótti lyklanna og ég hjólaði með eina litla ferðatösku á bögglaberanum uppeftir. Íbúðin var ógeðslega skítug, hefðum getað kvartað undan þrífunum, en þá máttum við ekki þrífa sjálf og það myndi taka lengri tíma. Þannig að við fórum út í Willy’s (sem er svipuð og Bónus og er hinu megin við götunna hjá okkur) og keyptum allskonar þrifnaðarvörur og settum upp gúmmíhanskanna og byrjuðum að þrífa. Fengum okkur svo að borða á gólfinu með sitthvor hnífapörin (ákváðum að kaupa það svo að við gætum flutt inn sem fyrst) og pappadiska Svo komu húsgögnin og þá var bara að byrja að setja saman hillur, skrifborð, sófaborð borðstofuborð og stóla. Héldum svo áfram daginn eftir og stilltum upp rúminu líka. Ákváðum svo að fara aðeins í Ikea aftur á laugardaginn (7/2) og kaupa smá dót sem vantaði eins og gardínur, kannski einn spegil og ljós, en ekkert mikið og við ætluðum að fara með það heim í lest og strætó. Þegar við komum á kassann með tvær fullar kerrur af dóti sáum við að við værum nú ekki að fara með þetta í lest né strætó. Keyptum nefnilega tvær hillur og eina skúffusamsetningu og svo tvær dýnur fyrir alla gestina sem ætla að koma og gista auk alls annars sem við ætluðum að kaupa og ætluðum kannski ekki alveg að kaupa. Held að maður fari ekki í Ikea til þess að kaupa bara smá dót, það er bara hreinlega ekki hægt. Fórum því bara í leigubíl heim. Svo á sunnudaginn fengum við bíl lánaðan hjá einum íslendingi á Kjammanum og fluttum allt dótið frá Kung Oscars vägen upp á Kjammann og nú erum við flutt, sváfum fyrstu nóttina okkar í nýja fína rúminu, reyndar ekkert óskaplega vel því að það er svo heitt í íbúðinni og ekki hægt að slökkva af ofnunum, en við fáum vonandi viðgerðamann í dag eða á morgun. Biðum nú bara eftir búslóðinni sem lagði af stað á fimmtudaginn seinasta. Er búin að setja inn nokkrar myndir af flutninginum. |
| Share on Facebook |
| 3 hafa tjáð sig um þessa færslu |
| björg v sagði klukkan 17:13 þann 9.February 2009 |
| ég vissi ekki að þið væruð með blogg! nú get ég verið algjör stalker og fylgst vel með ykkur þarna hinum megin við brúnna ;) og gaman að sjá myndir úr esjuferðinni, var ekki búin að sjá þær! |
| Arndís og Tumi sagði klukkan 20:52 þann 9.February 2009 |
| Frábært, núna getur maður farið að mæta í heimsókn:) |
| Vilhjálmur sagði klukkan 12:52 þann 10.February 2009 |
| Hehe Playstation 3 :D Sé það alveg fyrir mér hehe, Hjalti þú verður að vera með einhverja 1 persónu skotleiki tilbúna ef maður kæmi einhverntíman í heimsókn! |
| Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu? |
| Nýjustu færslur |
| Eldri færslur | ||||||
|
||||||
| Vinir |




2010 (2)
March (1)
Hefðum í raun getað flutt inn þarna á þriðjudaginn en við vorum ekki með neinar gardínur né gardínustangir þá og við búum á jarðhæðinni. Þannig að við urðum að bíða þangað til við keyptum eitthvað fyrir gluggana. Fórum nokkrar ferðir í vikunni með fullar töskur af dóti og auðvitað fórum við á hjólunum, þannig að ef þið haldið að við séum í lagi þá þurfið þið að breyta um skoðun. En við erum komin með ansi sterk læri því að leiðin upp á Kjammann er öll uppámóti aflíðandi brekka. Fórum svo á föstudaginn í Rfl aftur og keyptum rúllugardínur og eitthvað smádót. Hjalti fékk svo að kaupa sér Playstation 3 og var eins og litið barn á jólunum þegar hann tók hana upp úr kassanum, held barasta að brosið hafi farið allan hringinn.