| Verkefnin byrja að streyma |
| Silja ritaði 11.September 2008 |
Jæja nú er skólinn byrjaður á fullt og verkefnin raðast niður. Hjalti og Gummi fluttu fyrirlestur í dag og þeir þurfa að skila einhverju forriti á morgun og þeir eru einmitt í þessum orðum að vinna í því í skólanum núna. Ég er með eitt heimapróf í bígerð og eitt hópverkefni sem bæði þarf að skila þann 22 sept. og svo annað einstaklings verkefni sem ég þarf að skila föstud. 26 sept. Eitt sem er mjög erfitt að átta sig á eru einmitt verkefnin hérna. Hér er gert allt aðrar kröfur en heima á Íslandi. T.d. á hópverkefnið að vera texti sem maður myndi skila inn til vísindasiðanefnd til þess að fá leyfi til þess að framkvæma rannsókn. Við eigum að ímynda okkur að við séum að fara að gera eigindlega rannsókn um eitthvað félagsfræðilegt efni. Hópurinn minn er með gamalt verkefni frá nemendum sem gerðu þetta á seinustu önn og vá allt allt öðru vísi en ég hefði gert þetta í HÍ. Þessi texti var ekkert annað en eigin hugmyndir og skoðanir og engar tilvitnanir. Svo í lokin var vitnað í heimild sem hafði ekkert komið fram áður í textanum, þið í sálfræðinni þekkið að þetta á alls ekki að vera þannig heima þar á allt að vera rökstutt og engar personulegar skoðanir. Ég var í smá aukakurs í þessari viku sem heitir Samtalsträning en hinir í bekknum tóku þetta á fyrstu önnina. Í þessum kurs lærum við smá grunn um að tala við skjólstæðing og svo eigum við að taka viðtal við einn af hinum í hópnum og þetta er allt tekið upp á video og svo sjáum við það og fáum feedback frá hinum. Við þurftum bæði að vera sá sem tók viðtalið og líka skjólstæðingurinn og skjólstæðingurinn átti að ráða því hvað umræðuefnið væri. Ég valdi það hvernig það er að flytja til Svíþjóðar og þau vandræði sem maður lendir fyrst í (kennitöluvesen). Þetta var mjög gaman og sérstaklega gaman að sjá sjálfan sig í eftir á. Ég hélt að ég myndi vera mjög upptekin af því að það væri að taka viðtalið upp en ég fann bara ekkert fyrir því. Það væri mjög gaman að vita hverir lesa bloggið þannig að endilega bara kvitta til þess að ég viti fyrir hvern ég er að skrifa : ) og þið sem biðið eftir að Hjalti muni skrifa eitthvað og að ég hætti þessu sálfræði rammsi, þið verðið bara að biða spennt ; ) Við biðjum svo að heilsa öllum sem við þekkjum heima á klakanum. |
| Share on Facebook |
| 7 hafa tjáð sig um þessa færslu |
| Bjarni sagði klukkan 00:54 þann 12.September 2008 |
| Kvitt, kvitt Hjalti farðu að henda in kóða eða einhverjum jöfnum, vil fara að sjá einhverja rafmagnsverkfræði ;) |
| Svava sagði klukkan 23:29 þann 12.September 2008 |
| hæhæ ég kíki allta af og til og meira að segja veit ég að Erna las bloggið ykkar systra í morgun. það er bara gaman að lesa sálfræði-uppgötvanir þína og pælingar hvernig þetta er nú allt öðruvísi en hér heima. amk virðis þetta vera skemmtileg verkefni sem þú ert í og gefandi. vonandi verðu það þannig áfram og sænskan verður vonandi þjálli og þú ferð fljótlega að hugsa aftur á sænsku. Grettir er að verða mannelskari með hverjum deginum og reynir að komast inn í svefnherbergi, hann vaktar hurðina en fær ekki að koma inn. kv. mamma og Grettir |
| Arndís sagði klukkan 14:51 þann 13.September 2008 |
| Kvitt kvitt :) Úff ég gerði umsókn til vísindasiðanefndar í fyrra og það var þvílíkt mál, þetta var í stór hluti af fræðilega partinum af lokaritgerðinni minni. Fullt af heimildum!! |
| Ragna vinnuskólagerpi :Þ sagði klukkan 13:36 þann 15.September 2008 |
| Hæhæ ! Ég kíki reglulega og fylgist með. Gangi þér vel í skólanum, hljómar allt voða spennó. |
| Sandra sagði klukkan 13:56 þann 15.September 2008 |
| kvittós ;) |
| Egill pabbi sagði klukkan 17:14 þann 16.September 2008 |
| les alltaf |
| Lydía lilla syss sagði klukkan 13:09 þann 23.September 2008 |
| Hæ en flókið að þurfa breyta útaf vananum með skyrslur og annað, en gott að það gengur vel :D |
| Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu? |
| Nýjustu færslur |
| Eldri færslur | ||||||
|
||||||
| Vinir |




2010 (2)
March (1)