Á miðvikudaginn fórum við út í búð til þess að kaupa minniskortalesara en við komum reyndar líka út með langþráða draumin hans Hjalta, LCD sjónvarp. Þannig er mál með vexti að Hjalti hefur suðað um að fá flatskjá í mjög langan tíma en ég taldi það ekki vera hagstætt að kaupa það fyrr en við fluttum út til þess að fara í nám. Núna þegar við erum loksins komin út var það eitt af því sem var fyrst á dagsskrá. Hjalti er einmitt í þessum orðum að fara að horfa á Ísland - Spánn í fína nýja sjónvarpinu. ÁFRAM ÍSLAND.
Svo var það næst á dagsskrá að kaupa hjól handa Hjalta hérna úti. Mér fannst sniðugast að finna notað ódýr hjól og við vorum búin að frétta af því að það væri verið að selja svoleiðis hjól á háskólasvæðinu. Fórum og skoðuðum, þetta var ekkert smá ryðguð hjól og barasta alls ekki ódýr miðað við gæðin á þeim, þannig að við fórum í hjólabúð hérna í Lundi og keyptum voðalega fint herra hjól fyrir Hjalta. Þannig að í gærkvöldi fórum við í hjólatúr um hverfið. Enginn smá munur að hjóla hérna úti því að maður þarf ekki að vera stressaður yfir brjálaðuðum ökumönnum sem hugsa ekkert um hjólandi fólk. Hjóluðum meira segja framhjá Anslagsvägen, þar sem Hjalti bjó þegar hann var lítill.
Þegar við vorum í þessum hjólahugleiðingum poppaði upp spurning hjá mér: Afhverju eru til herra og dömu hjól. Afhverju eru ekki öll hjól eins í laginu?. Ég skil alveg af hverju dömuhjól eru með slánna í boga, til þess að maður geti verið í pilsi, en ég skil bara ekki afhverju sláin á herrahjólunum þarf að vera bein, það er bara enginn tilgangur með þeirri hönnun eða hvað?
Jæja ætla að fara að horfa á leikinn. |