Nýjustu færslur
 

Eldri færslur
2010 (2)
March (1)
Farið að vora
January (1)
Ný önn
2009 (18)
December (1)
Jólin bara alveg næstum því að koma
October (1)
Við erum á lífi
August (2)
Roadtrip 2009
Komin aftur til Svíþjóðar
May (1)
Maí
April (3)
Fréttir
Glad Påsk
Sól og sumar
March (3)
Fjólublátt gifs
Silja seinheppna
Söngur vs ískur
February (3)
Bolla, semla, bolla
Heima er best
Flutt á Kjammann
January (4)
Íbúð á Kjammanum
Mamma í heimsókn
Skólinn byrjaður aftur
Á Íslandi er gaman...
2008 (18)
December (1)
Bráðum koma blessuð jólin...
November (4)
Vetur í Lundi
Unnur í heimsókn
Tvö lokapróf og ein aðgerð
HÍ fílingur
October (4)
Fréttir
Prófavika
Heilaskoðun
Fyrsta heimsóknin
September (5)
Loksins
Undur og stórmerki
Verkefnin byrja að streyma
Lífið í Lundi
Sálfræðinámið og akedemískt korter
August (3)
Fréttir af okkur
Komin með sjónvarp og hjól
Komin til Lundar
June (1)
Loksins hipp og kúl
 

Vinir
 


HÍ fílingur
Hjalti ritaði 1.November 2008

Jæja, þá er maður byrjaður á seinni haustönn og mér sýnist heldur beutr vera aðeins meira að gera hjá mér núna heldur en á fyrstu önn. Maður er bara næstum kominn í sama fíling og þegar maður var á öðru ári í HÍ.

Raforkuverkfræði áfanginn sem ég er í á þessari önn virðist nefnilega vera með íslenskum stíl. Fyrirlestrar byrjuðu í þessari viku og fyrsta skilaverkefnið var með deadline í gær. Núna er strax búið að úthluta næsta verkefni, og svona fljótt á litið virðist það bara vera á svipuðum stærðarskala og gott heimapróf í Línulegum kerfum. Ég er búinn vera koma mér upp Matlab og er að rifja upp hvernig allt var nú gert og er svo að safna kröftum í að ráðast á þetta verkefni.

Ég var búinn að nefna að ég væri í einhverjum Industrial Economy áfanga á þessari önn líka. Búnir að vera 4 fyrirlestrar og eiginlega ekkert hægt að læra af þeim. Þetta er bara alls konar useless upplýsingar um innovation. Einhvað það merkilegasta sem ég hef lært af þessum fyrirlestrum er tengt stolti Svía, nefnilega IKEA og er eftirfarandi:

  • Þegar IKEA opnaði sína fyrstu verslun var aðsóknin fjórfalt meiri en bjartsýnustu menn áætluðu. Þetta varð til þess að starfsfólkið hafði engan veginn undan að aðstoða viðskiptavini og var því ákveðið að hleypa viðskiptavinum bara inn á lager og sækja vörurnar sjálfir. Þetta reyndist svo vel að allt frá því er þetta eitthvað þekktasta einkenni verslunarinnar.

Svo erum við Gummi núna að byrja að vinna í verkefninu okkar. Við ákváðum að smíða lítinn bíl sem á að skynja ef hann er að fara að rekast á vegg og beygir þá. Ef okkur gefst nægur tími þá á þessi bíll að geta keyrt um herbergi og mælt út stærðina. Þessi mæligögn mundum við svo reyna að senda yfir í tölvu sem teiknar upp gólfflötinn í CAD forriti.

Samhliða þessu forriti eigum við í öðrum áfanga að forrita eftirlitsmyndavélakerfið sem ég var búinn að segja frá þannig að þetta verður örugglega dáldið intensive önn hjá mér.

Jæja þá, best að fara að rifja upp Matlab...

Share on Facebook
 
1 hefur tjáð sig um þessa færslu
 
Sævar Ö sagði klukkan 17:28 þann 26.November 2008
 
Jón Erlendsson, býður einhver betur?
 
Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu?
 
Stjórnborð