Nýjustu færslur
 

Eldri færslur
2010 (2)
March (1)
Farið að vora
January (1)
Ný önn
2009 (18)
December (1)
Jólin bara alveg næstum því að koma
October (1)
Við erum á lífi
August (2)
Roadtrip 2009
Komin aftur til Svíþjóðar
May (1)
Maí
April (3)
Fréttir
Glad Påsk
Sól og sumar
March (3)
Fjólublátt gifs
Silja seinheppna
Söngur vs ískur
February (3)
Bolla, semla, bolla
Heima er best
Flutt á Kjammann
January (4)
Íbúð á Kjammanum
Mamma í heimsókn
Skólinn byrjaður aftur
Á Íslandi er gaman...
2008 (18)
December (1)
Bráðum koma blessuð jólin...
November (4)
Vetur í Lundi
Unnur í heimsókn
Tvö lokapróf og ein aðgerð
HÍ fílingur
October (4)
Fréttir
Prófavika
Heilaskoðun
Fyrsta heimsóknin
September (5)
Loksins
Undur og stórmerki
Verkefnin byrja að streyma
Lífið í Lundi
Sálfræðinámið og akedemískt korter
August (3)
Fréttir af okkur
Komin með sjónvarp og hjól
Komin til Lundar
June (1)
Loksins hipp og kúl
 

Vinir
 


Skólinn byrjaður aftur
Silja ritaði 21.January 2009

Jæja best að skrifa smá færslu. Langt síðan síðast, vorum meira að segja á Íslandi þá.

Við erum bæði byrjuð á nýjum önnum i skólanum. Hjalti er núna á þessari fyrri vorönn í tveimur áföngum (sem hann getur kannski lýst betur seinna). Ég byrjaði núna á mánudaginn persónuleikasálfræði. Reyndar er ég búin að taka áfanga á Íslandi um allar kenningarnar þannig að ég fæ það að mestu metið og þarf því ekki að taka eitt heimapróf sem á víst að vera ansi snúið. Það sem ég geri í þessum áfanga er að halda einn fyrirlestur um eina kenninguna með tveimur strákum úr bekknum. Svo fæ ég “klient” – einhver ókunnug manneskja sem ég þarf að leggja fyrir persónuleikapróf og frávarpspróf og svo skrifa út frá kenningunum um hvernig persónuleiki hennar er. Þetta þarf ég svo að sýna “klientinum” mínum til að athuga hvort að eitthvað vit sé í þessari persónuleikadæmingu minni.

Svo fór ég í aðgerðina mína í gær. Það gekk svosem vel. Var smá stressuð fyrir, en það var ósköp vel hugsað um mig, Svíarnir eru svo aumingjagóðir og vorkenna manni svo mikið. Þeir skáru burt helling af þessum vírus, meira en hvað hefði sést á myndinni. Mér líður bara núna eins og maður sé með slæma hálsbólgu, vont að kyngja og svoleiðis. En ég má tala, eins og ég treysti mér til. Svæfingin fór bara vel í mig til að byrja með, bara smá ringluð og máttfarin. En svo eftir að við gengum heim, byrjaði mér að verða óglatt. Mér leið eins og ég væri bílveik, mátti ekki hreyfa mig og ekki hugsa um hreyfingu, hvað þá að sjá hreyfingu eins og í sjónvarpinu. Varð bara að liggja með lokuð augu og einbeita mér að hreyfa mig ekki eða hugsa um hreyfingu. Öll hljóð trufluðu einbeitinguna mína eins og að Hjalti var að bryðja hálsbrjóstsykur. Svo á endanum kom bara sú litla næring sem ég hafði fengið mér upp og þá leið mér aðeins betur. Núna líður mér bara eins og ég sé með hálsbólgu og er illt í öllum líkamanum. En ætla í skólann í dag því að kennarinn sagði að þetta væri svo mikilvægur tími.

Versta er að læknirinn sagði að þeir sem fara í svona aðgerðir þurfa oft að fara aftur því að maður læknar náttúrulega ekki vírus.

Jæja ætla að fara í tíma, heyrumst seinna.

Share on Facebook
 
2 hafa tjáð sig um þessa færslu
 
Erna Bjork sagði klukkan 13:17 þann 21.January 2009
 
Er þetta ekki svona aðgerð, þar sem að einhver þarf að stjana við þig og dæla í þig ís :-)
 
Lydía Systir sagði klukkan 16:01 þann 21.January 2009
 
Spennandi verkefni sem þú ert að fara gera ;D
 
Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu?
 
Stjórnborð