| Ný önn |
| Silja ritaði 21.January 2010 |
Jæja þá er ný önn hafin. Við erum búin að koma okkur fyrir í íbúðinni okkar, þurftum bara að fara í tvær IKEA ferðir til þess að fylla uppí tómarúmið, enda tvöfalt stærri íbúð en sú sem við vorum í. Nú erum við með svefnherbergi, gestaherbergi með fínum svefnsófa, herbergið hans Hjalta (skrifstofa), stofu/borðstofu, eldhús og klóset með fínu baðkari. Þetta er bara fínasta íbúð og fyndast er að maður heyrir eiginlega bara íslensku hérna í garðinum. Til dæmis er íslensk fjölskylda í íbúðinni fyrir ofan okkur og ein í íbúðinni beint á móti okkur. Við erum nú smá virk í íslenska félagslífinu hérna. Ég mæti kjaftaklúbb annan hvorn sunnudag og Hjalti er byrjaður í badminton með íslensku strákunum. Hins vegar finnst mér líka mjög mikilvægt að halda samband við sænsku vinina (þá aðallega vinkonur mínar úr sálfræðinni hérna) og ætla að halda smá pizzuparty fyrir þær á morgun. Ég byrja frekar rólega í skólanum þessa önn, það er verið að undirbúa okkur fyrir að taka á móti skjólstæðingum í meðferð. Sálfræðideildin er með móttöku þar sem nemarnir á önnum 7-10 reyna að hjálpa villtum sálum á rétta braut. Þetta er aðallega fólk með kvíða og þunglyndi sem koma á þessa móttöku. Mér finnst þetta mjög spennandi og vona að þetta gangi nú bara vel. Við verðum svo með þessa skjólstæðinga meðfram hinu náminu. Um miðjan mars byrja ég svo í svaka stórum vinnusálfræði kurs sem heldur svo áfram yfir á næstu önn. Þetta hljómar spennó en þeir segja að þetta sé frekar þungir áfangar. Við skulum bara sjá til hvernig þeir eru miðað við áfangana í HÍ. Hjalti er líka byrjaður í skólanum. Hann er í tveimur tímum á viku, annar á mánudegi og hinn á föstudegi, ansi mikið að ger hjá honum eða þannig. Reyndar eru þetta tveir áfangar, hann heldur áfram að byggja þetta projekt sem hann var að hanna fyrir jól auk þess sem hann er í umhverfis- og auðlindaáfanga. Hann er nú reyndar líka duglegur að vinna fyrir Kögun og svo er hann að fara að leita sér að mastersverkefni.
Svo var ég búin að lofa að Hjalti myndi setja inn myndband af Segway-inum sem hann bjó til fyrir jól. Hérna er stutt myndband. Einnig er hægt að downloada því hér. Jæja læt þetta duga í bili. |
| Share on Facebook |
| Enginn hefur tjáð sig um þessa færslu |
| Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu? |




2010 (2)
March (1)