| Undur og stórmerki |
| Hjalti ritaði 19.September 2008 |
Jæja þá er loksins komið að því, fyrsta færslan mín orðin að veruleika.
Skólinn hjá mér er kominn á fullt. Fyrirkomulagið hérna er aðeins annað en í HÍ. Hér er skólaárinu skipt í 4 annir. Á þessari önn er ég í þremur áföngum, einum skylduáfanga sem er Computer Communication sem verður að viðurkennast er ekki beint skemmtilegasti áfangi í heimi. Var að gera verklega æfingu í því fagi á fimmtudaginn og er svo að fara í miðannarpróf á mánudaginn. Ég er síðan í tveimur skemmtilegum valáföngum, Realtime Programming og Industrial Measurement Systems for Control. Þeir eru nú svoldið skemmtilegri og eru líka svoldið stærri. Þeir taka báðir tvær sænskar annir, þ.e. eru ein íslensk önn. Seinni önnin í þessum áföngum eru þó eingöngu notaðir í lokaverkefni en enga fyrirlestra. Svo verður maður aðeins að skoða menningarlífið hér í Svíþjóð og hvað hentar þá betur en að skella sér á Menningarnótt sem er einmitt haldin hér í Lundi annað kvöld. Við Silja ætlum að rölta niður í bæ og skoða dagskránna. Áhugavert að vita hvort þetta verði svipuð ómenning og menningarnóttin á klakanum. Jæja, ætli maður verði ekki að fara að reyna að læra fyrir þetta próf. Þeir sem hafa tekið fjarskiptaverkfræðina í HÍ geta kannski ímyndað sér hvað þetta er nú skemmtilegt fag en þetta er eiginlega sama efni nema bara ítarlegra. P.S. Samkvæmt ósk frá Bjarna þá er hér ein góð jafna. |
| Share on Facebook |
| 1 hefur tjáð sig um þessa færslu |
| VIlhjálmur Ásmundsson sagði klukkan 13:50 þann 23.September 2008 |
| Haza Haza! Loksins fer maður að sjá eitthvað frá þér, ég var jafnvel farinn að hugsa um að kommenta á einhverja færslu frá henni Silju undir þínu nafni og googlaði "funny mathematical formulas" og ætlaði að henda henni með ;) En sé að þú er með þetta all under control. Gangi þér vel að lærast! |
| Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu? |
| Nýjustu færslur |
| Eldri færslur | ||||||
|
||||||
| Vinir |




2010 (2)
March (1) 