Jæja þar sem við Hjalti erum að fara úr landi þarf maður nú að búa til blogg (þ.e.a.s. Hjalti bjó til blogg). Það á víst að vera í mínum verkahring að skrifa eitthvað skemmtilegt þannig að fólk geti fylgst með okkur í hinum stóra heimi.
Þannig er það að við Hjalti erum bæði komin inn í framhaldsnám í Lundar Háskóla í Sverige. Jápp við erum að fara þangað aftur, reyndar á heimkynni Hjalta en ekki mín.
Við flytjum úr landi 19 ágúst og svo byrjar skólinn 25 ágúst. Núna erum við að biða eftir að geta sótt um íbúð á studentagörðunum þarna úti (getum ekki sótt um fyrr en 10 júlí).
Þannig að hérna koma fréttir af okkur og hvað gerist í Svíaríkinu. Svo setjum við inn skemmtilegar myndir af öllum sem við þekkjum (t.d. eru komar inn myndir frá Vinnuskóladjammi og Esjuferð hjá okkur stelpunum). |