| Loksins |
| Silja ritaði 25.September 2008 |
Jæja langt síðan síðast. Hvað haldið þið að hafi komið inn um bréflúguna í morgun, langþráða personbevisið. Við erum búin að bíða eftir að fá staðfestingu á því að við séum komin inn í sænska kerfið í 5 vikur, reyndar fékk ég boðun í krabbameinsskoðun hérna úti þannig að ég vissi að við vorum komin inn. Þannig að þá fórum við beint í bankann og nú erum við komin með bankareikninga og fáum debetkort eftir viku. Svo er það bara að byrja lifa á kerfinu - ætlum að reyna sækja um námsmanna styrk og svoleiðis. Þannig að núna er þetta næstum því allt komið - nema þá kannski þá íbúðin. Svo er það fréttir af okkur: Ég fór með Sirrý vinkonu úr Sálfræðinni í HÍ á kaffihús í síðustu viku. Hún bjó í Köben og var reyndar að flytja heim aftur þannig að við ákváðum að hittast hérna úti áður en hún færi heim. Þetta var voðalega gaman að fara og tala við einhvern sem maður þekkir um daginn og vegin án þess að þurfa að hugsa um hvað maður á að segja svo fólk geti skilið mann. Ég er búin að skila heimaprófinu, það gekk nú bara vel held ég og svo hélt hópurinn minn (grupp 4) kynningu um vísindasíðanefndarverkefnið okkar í gær. Gekk mjög vel. Til að fagna að þetta var búið ákváðum við að halda matarboð og elduðum öll saman heima hjá Lisu og horfðum á Fellow sem er mjög góð mynd. Eftir það fórum við á einn studentabar og þar fórum við öll í borðtennis og höfðum það gaman. Hér er mynd af hópnum að borða:
Eitt sem ég er búin að taka eftir er að ég verð greinilega að kynna mér betur um alls konar upplýsingar um Ísland. Fólk er mjög forvitið og spyr og spyr. Ísland er hálfgert svona draumaland hérna í Svíþjóð, allir vilja fara þangað einhvern tíman. Hjalti fór líka í próf þarna um daginn og það gekk líka mjög vel. Það sem hann gerir þessa dagana er að vinna fyrir Kögun, forrita heimasíður og lærir svona af og til. Eitt sem ég er að fíla í botn hérna er að maður hefur tíma til þess að chilla aðeins, maður má horfa á imbann án þess að vera með samviskubit og getur farið út að hitta vini sína. Við erum til dæmis með 17 tv stöðvar og ég er búin að finna mér nýjan uppáhaldsþátt - Extreem make over, home edition þetta er geggjaður þáttur, dálitið bandarískur en mjög skemmtilegur. Eitt sem þið megið endilega gera er að senda mér sniðugar uppskriftir. Við erum eiginlega orðin uppiskroppa á þægilegri matseld sem er létt að elda og sem er líka góður og hollur. Þar sem við verðum að elda alltaf sjálf núna og maður getur ekki skroppið í mat eitthvert til þess að fá smá tilbreytingu þá verður þetta dálitið einhæft :)
Kram Silja |
| Share on Facebook |
| 8 hafa tjáð sig um þessa færslu |
| Mamma sagði klukkan 20:52 þann 25.September 2008 |
| Hollt og gott fyrir Hjalta: Fiskur í formi með rjómaosti og pesto, bara taka ferkantaðan fisk eins og maður kaupir hann frosinn í ICA og skella honum í form, smyrja yfir með rjómaosti og pesto og hita í ca 15.mín á 200°. Salat og hrísgrjón er gott að hafa með kv Mamma |
| Erna Bjork sagði klukkan 12:22 þann 26.September 2008 |
| Það eru allir svo stífir í þessu matarboði... Benda bara á island.is þar eru svörin við öllum skrítnu spurningunum :-) |
| Arndís og Tumi sagði klukkan 15:10 þann 26.September 2008 |
| Við mælum með mangóchutney-kjúlla. Ein krukka af mangóchutney, rjómi eða mjólk og kryddað með karrý. Hrært saman þar til "sósan" verður frekar þunn. Kjúklingabringur léttsteiktar á pönnu settar svo í eldfast mót og mangóchutney-sósunni helt yfir. Síðan er gott að sjóða hrísgrjón til að hafa með. Bon appetit |
| Lilja Rún sagði klukkan 19:07 þann 26.September 2008 |
| Gaman að allt gengur vel. og hér er ein góð: (án mjólkur ;) rifin eingifer,skorið chilli,slatti soja og handfilli af skornu koriander (má sleppa)sett í poka. í þetta er sett túnfisksteik og látin bíða í 20 mín. steiktur á pönnu í 15-60 sek (fer eftir þykkt)á hvorri hlið. Borið fram með þessu wok steikrar núðlur með því grænnmeti sem óskað er. svo er líka gott að nota mareneringuna í wokið! ef maður nennir ekki að gera wok núðlur má líka bara hafa hrísgrjón hehe kv Lilja |
| Lydía Dögg sagði klukkan 13:01 þann 28.September 2008 |
| hæhæ, er ekki með neina góða upskrift sem þú þekkir ekki fyrir, held ég... en gaman að þíð getið verið social með öðru fólki! Það er alltaf svo mikið steress á íslandi ;) |
| Unnur Ósk sagði klukkan 20:15 þann 30.September 2008 |
| BBQ kjúlli: bbq sósa, púðursykur, apríkósumarmelaði (bara tsk) og rjómi, líka hægt að nota plat craime freche frá maizena í þetta í stað rjóma. allt í pott. hellt yfir rifinn kjúlla eða eldaðar bringur og inn í ofn í 20mín. salat, grjón og jafnvel hvítlauksbrauð með :) |
| Birgir Hrafn sagði klukkan 12:08 þann 1.October 2008 |
| bonjour :) Ég er hérna með 2 uppskriftir :). Ein gömul og góð og hin búin til af meistaranum moi :D. Grjónasojakjúklingasalsasósueitthvaðsembúiðvartilummiðjanóttíkeflavík Aðferð: Sýður hrísgrjón í vatni með dassi af olíu, pínulitlu af salti og ogguponsuslatta af sojasósu. Á meðan hrísgrjónin eru að sjóða skalltu skera slatta af kjúklingabringum í litla bita. þegar það eru svona rúmlega circabout 3 til 5 mínútur eftir af hrísgrjónunum skalltu steykja kjúklingabitana með einhverjum sterkum kryddum sem þú átt (chilli er líka fínn í þetta). Þegar hrísgrjónin eru til skalltu skella þeim á pönnuna ofan á kjúkginginn og hella 2 HOT SALSA sósum (http://www.smiths.com.au/images/packshots/doritossalsa-hot.jpg) og þessu á síðan að hræra saman og borða með góðri list :D Ingredients: Nokkrar krukkur af sterkri (HOT) Salsa Sósu Bönch af hrísgrjónum, Dass af olíu, smá salt, oggupons af sojasósu (xTumafastinn), slatti af kjúklingabringum, eitthvað af kjúklingakryddum. Ég eldaði þetta einhverja andvökunóttina í kjeflavíkinni og þetta smakkaðist bara ansi vel :D Hjónabandssælan er auðvitað klassík í eftirrétt ;) aðferð: smjörlíkið brætt í örbylgjunni. Allt þurra dótið sett saman í skál og hrært saman og síðan er sett dass af smjörlíkinu, smátt og smátt þangað til að deigið er orðið svonu jummyjummy :D ingredients: 200 gr. smjörlíki 170 gr. haframjöl 170 gr. hveiti 100 gr. sykur 1 tsk. natron (matarsódi) Rabbabarasulta (það má líka nota bláberjasultu) Hafið það nú gott þarna úti með kveðju frá kallinum á klakanum :) |
| Sigga sagði klukkan 18:02 þann 1.October 2008 |
| Púff fólk bara dælir í ykkur uppskriftum hægri vinstri. Ég mæli nú bara með hvaderimatinn.is einfaldara getur það ekki orðið ;) |
| Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu? |
| Nýjustu færslur |
| Eldri færslur | ||||||
|
||||||
| Vinir |




2010 (2)
March (1) 