Jæja, ætli það sé ekki kominn tími á að ég skrifi eins og eina stutta færslu. Lenti í því leiðinda máli að heimasíðan mín datt út, allt í einu var lénið skráð á einhvern annan aðila. Virðist sem það sé komið í lag núna.
Af mér er annars það að frétta að ég er að klára að ganga frá síðustu köflum í skýrlsu um hönnun tækis sem á að rannsaka kæligöng í kjarnorkuverum og finna galla í steypu. Þetta er hópverkefni í áfanganum Mechatronics og snýst eingöngu um hönnun þannig að maður getur leyft sér að hanna gífurlega fáránleg concept. Annars er veðrið hér svo svakalega gott að maður reynir að nota tímann í að worka tanið áður en maður kemur aftur til Íslands.
Svo styttist í heimför okkar skötuhjúa, Silja flýgur heim 26. Maí og ég fylgi á eftir þann 28. Okkur tókst báðum að fá vinnu, Silja sem yfirleiðbeinandi hjá Vinnuskólanum og ég fæ aftur vinnu hjá Kögun. Mér skilst að við getum verið mjög sátt þann árangur, það var einhver sem ég talaði við sem sagði eitthvað um kreppu. Ég veit ekki en hefði maður ekki heyrt eitthvað í fréttum ef það væri einhver meiriháttar efnahagskreppa að ganga yfir í heiminum, ég bara spyr.
Læt þetta duga að sinni |