Nýjustu færslur
 

Eldri færslur
2010 (2)
March (1)
Farið að vora
January (1)
Ný önn
2009 (18)
December (1)
Jólin bara alveg næstum því að koma
October (1)
Við erum á lífi
August (2)
Roadtrip 2009
Komin aftur til Svíþjóðar
May (1)
Maí
April (3)
Fréttir
Glad Påsk
Sól og sumar
March (3)
Fjólublátt gifs
Silja seinheppna
Söngur vs ískur
February (3)
Bolla, semla, bolla
Heima er best
Flutt á Kjammann
January (4)
Íbúð á Kjammanum
Mamma í heimsókn
Skólinn byrjaður aftur
Á Íslandi er gaman...
2008 (18)
December (1)
Bráðum koma blessuð jólin...
November (4)
Vetur í Lundi
Unnur í heimsókn
Tvö lokapróf og ein aðgerð
HÍ fílingur
October (4)
Fréttir
Prófavika
Heilaskoðun
Fyrsta heimsóknin
September (5)
Loksins
Undur og stórmerki
Verkefnin byrja að streyma
Lífið í Lundi
Sálfræðinámið og akedemískt korter
August (3)
Fréttir af okkur
Komin með sjónvarp og hjól
Komin til Lundar
June (1)
Loksins hipp og kúl
 

Vinir
 


Heima er best
Silja ritaði 19.February 2009

Jæja þá erum við búin að koma okkur fyrir.

En byrjum aðeins fyrr í tímanum enda langt síðan ég bloggaði síðast. Það er búið að vera mikið að gera hjá okkur báðum í skólanum. Hér í Svíþjóð er búið að vera skítkalt, það var svo rosalega gott veður og ég hélt að það væri komið vor þegar við fluttum inn 8. feb. En svo byrjaði að kólna og varað við snjóstormi. Það kvöld snjóaði kannski 10 til 15 cm og auðvitað enginn snjóstormur eins og við Íslendingar erum vön heldur snjóaði bara ósköp rólega og beint niður. Síðan er búið að vera skítakuldi í rúma eina og hálfa viku, í gærnótt var t.d. -12 °C (sem er miklu kaldara hér en heima vegna þess að það er svo rakt).

Vissuð þið að hjól frjósa. Um daginn hjólaði ég í 1 gír niður brekku (sem er alla leið í skólann) því að gírarnir voru frosnir og eins og Líney sagði, manni liður eins og hamstri þegar maður hjólar eins og fáviti til þess að halda við sama hraða og hjólið rúllar. Svo gat ég ekkert hjólað því að lásinn var frosinn og svo loks frusu bremsurnar og ég hjólaði t.d. hálfa leið í skólann með bremsuna á afturdekkinu og kom frekar sveitt í skólann þann daginn. Hins vegar er búið að vera ofboðslega fallegt og heiðskýrt og sól – en eins og ég segi, skíta kuldi.

Svo bauð Líney mér með sér í saumaklúbb. Þetta eru nokkrar íslenskar stelpur sem hittast af og til og spjalla og prjóna, held að þær séu í íslenska kórnum hérna. Þetta var ósköp notalega og skemmtilegt.

Búslóðin okkar kom svo á miðvikudaginn (í gær). Það gekk allt mjög vel og allt næstum því heilt nema það brotnaði fótur af sófanum. Vorum búin að fá Gumma til að hjálpa okkur til þess að bera þetta inn en svo seinkaði búslóðinni aðeins og við Hjalti bárum þetta bara sjálf inn. Svo fór ég á fyrirlestur og kom ekkert heim fyrr en um kvöldið og þá var Hjalti búin að vera mjög duglegur og taka upp úr mjög mörgum kössum. Við héldum svo áfram saman og náðum að klára að taka upp allt úr kössunum í dag og ganga frá öllu og setja kassanna í geymsluna okkar. Þetta er bara eins og alvöru heimili núna, nema það vantar litlu loðnu börnin mín (kisurnar fyrir þá sem ekki þekkja til), en þau geta víst ekki komið til mín.

Þið getið í raun ekki ímyndað ykkur hvað mér líður vel að vera komin með eigin íbúð. Að losna við að hafa fötin okkar í ferðatöskum á golfinu og vera ekki alltaf í rúminu, því að við vorum alltaf uppí rúmi þegar við bjuggum hjá Svajunasi, sváfum, lærðum, horfðum á sjónvarpið uppí rúmi. Borðuðum reyndar frammí í eldhúsinu. Nú erum við bæði með stofu og svefnherbergi. Þetta er hrein hamingja.

Share on Facebook
 
1 hefur tjáð sig um þessa færslu
 
Arndís og Tumi sagði klukkan 17:34 þann 20.February 2009
 
Núna fer maður að huga að ferð til Svíþjóðar;)
 
Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu?
 
Stjórnborð