| Lífið í Lundi |
| Silja ritaði 7.September 2008 |
Jæja best að skella inn smá fréttir af okkur. Nú er fyrsta skólavikan okkar búin og ég er búin að fá fyrsta heimaprófið sem ég þarf reyndar ekki að skila inn fyrr en eftir tvær vikur. Hjalti er líka búin að fá fyrsta verkefnið, hann og Gummi eru að fara að flytja fyrirlestur í næstu viku. Það gengur bara allt mjög vel í skólanum, sænskan verður minna mál með hverjum degi, þó að ég eigi nú dálitið erfitt með að svara þessu prófi á sænsku, byrja á því að skrifa svörin á ensku og þýði þau svo vonandi yfir á sænsku. I deildinni hans Hjalta er enskan mun meiri notuð en hjá mér er það bara svenska som jäller. Eitt sem er mjög óvanalegt fyrir okkur tæknivæddu Íslendinga hérna er að fólk er ekki með fartölvur í tíma, þau glósa bara með penna og blað. Auk þess sem kennararnir sem kenna minn áfanga nota ekki gamaldags glærur og vita ekki einu sinni hvað Power Point heitir (ein reyndi að lýsa því, svona forrit sem sýnir myndir og glærur á veggin). Þannig að það er bara að virkja eyrun og vera duglegur að skrifa niður það sem þeir segja. Á morgun fer ég í minn fyrsta sálfræðitíma, en það er hluti hérna af náminu að fara til sálfræðings. Þetta kallast utbildningsterapi og ég þarf að fara í 50 svoleiðis tíma, einn til tvo í viku. Hringdi í nokkra sálfræðinga og fékk loksins tíma hjá einni konu sem hjólmaði mjög fin í símanum. Þetta verður svolitið spennandi og örugglega svolitið sérstakt að þurfa að tala um sjálfan sig í klukkutíma. Það er ekkert að frétta af húsnæðismálum hjá okkur, við erum í raun ekki bjartsýn á að fá íbúð þessa önn. Þannig að við verðum bara hérna í þessu herbergi í lengri tíma en við bjuggumst við. Við fórum reyndar í svona æfingaferð í Ikea í dag, mig sárvantaði fatahengi til þess að geta hengt upp peysur svo maður sé ekki alltaf í krumpuðum fötum úr ferðatöskunum. Keyptum þessa fínu fataslá, nokkur herðatré, rúmteppi og svo bættum við aðeins í eldhúsdótið hérna hjá honum Svajunasi. jæja þar til næst... |
| Share on Facebook |
| 3 hafa tjáð sig um þessa færslu |
| Hlín sagði klukkan 16:28 þann 7.September 2008 |
| Hæ hæ, var að detta inná bloggið ykkar og ákvað að heilsa uppá ykkur :) Skemmtilegt blogg og gangi ykkur vel þarna úti. Kveðja frá Afríku, Hlín |
| Arndís sagði klukkan 08:21 þann 9.September 2008 |
| Gott að öll hjól séu farin að rúlla hjá ykkur. Vona að íbúðaleitin fari að ganga betur. Bestu kveðjur frá DK. Arndís |
| pabbi sagði klukkan 20:26 þann 9.September 2008 |
| gaman að heyra frá ykkur |
| Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu? |
| Nýjustu færslur |
| Eldri færslur | ||||||
|
||||||
| Vinir |




2010 (2)
March (1)