| Fyrsta heimsóknin |
| Silja ritaði 4.October 2008 |
Jæja hlaut að koma að því, við fengum heimsókn, Lydía (systir Silju) kom frá Uldum í DK hingað í gærkvöldi. Við systurnar píndum Hjalta að horfa á smá stelpumynd á föstudagskvöldið og svo ætla ég að draga þau með í bekkjarpartý í kvöld. Ég og Lydía fórum göngutúr um bæinn og ég sýndi henni skólann minn og svo fórum við í Botaniska garðinn og borðuðum kanelbullar - því að það var kanelbullens dag í dag. Svo fer hún heim í skólann sinn á morgun. Hérna er mynd af okkur systrunum. Á matseðli kvöldsins eru kjötbollur og makkarónur að beiðni Lydíu, auk þess sem hún borðaði sænska limpu með smjöri og súkkulaðihnetusmjöri í morgunmat. Annars ekki mikið að frétta af okkur hérna úti í Svíaríkinu. Ég ákvað reyndar að skella mér í annan kurs þannig að nú er ég að lesa, næstum því tvöfallt, þannig að það er nóg að læra en þetta flýtir aðeins fyrir mér. Svo nálgast annar prófin hjá Hjalta óðfluga.
Ekkert að frétta af húsnæðismálum hjá okkur fyrir þá sem bíða spenntir Við keyptum okkur flugmiða í gær og munum koma heim þann 18. des og fara aftur út 6. jan. Auk þess bætti ég við myndir hérna á síðunni okkar þannig að þið getið skoðað þær. Ef þið viljið skoða myndirnar betur þá borgar sig að opna þær með firefox, þar sem explorerinn klúðrar stundum birtingu . |
| Share on Facebook |
| 3 hafa tjáð sig um þessa færslu |
| Birna sagði klukkan 15:01 þann 5.October 2008 |
| Hæhæ, Gaman að sjá myndir af ykkur. Sæt mynd af ykkur systrunum og kannski ekki jafn sæt mynd af þér að borða kanilsnúð! hehe =) Kveðja Birna |
| Svava sagði klukkan 20:51 þann 7.October 2008 |
| Sætar systur, Lydía hefur beðið um uppáhaldsmatinn sinn frá því að hún var lítil í Vermlandi kveðja Mamma |
| Lydía lilla syss sagði klukkan 19:11 þann 12.October 2008 |
| Takk kærlega fyrir mig :D þetta var frábært ferðalag :* |
| Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu? |
| Nýjustu færslur |
| Eldri færslur | |||||||||||||||
|
|||||||||||||||
| Vinir |




2010 (2)
2008 (18) 
(kannski aðallega við sjálf).