Nýjustu færslur
 

Eldri færslur
2010 (2)
March (1)
Farið að vora
January (1)
Ný önn
2009 (18)
December (1)
Jólin bara alveg næstum því að koma
October (1)
Við erum á lífi
August (2)
Roadtrip 2009
Komin aftur til Svíþjóðar
May (1)
Maí
April (3)
Fréttir
Glad Påsk
Sól og sumar
March (3)
Fjólublátt gifs
Silja seinheppna
Söngur vs ískur
February (3)
Bolla, semla, bolla
Heima er best
Flutt á Kjammann
January (4)
Íbúð á Kjammanum
Mamma í heimsókn
Skólinn byrjaður aftur
Á Íslandi er gaman...
2008 (18)
December (1)
Bráðum koma blessuð jólin...
November (4)
Vetur í Lundi
Unnur í heimsókn
Tvö lokapróf og ein aðgerð
HÍ fílingur
October (4)
Fréttir
Prófavika
Heilaskoðun
Fyrsta heimsóknin
September (5)
Loksins
Undur og stórmerki
Verkefnin byrja að streyma
Lífið í Lundi
Sálfræðinámið og akedemískt korter
August (3)
Fréttir af okkur
Komin með sjónvarp og hjól
Komin til Lundar
June (1)
Loksins hipp og kúl
 

Vinir
 


Heilaskoðun
Silja ritaði 9.October 2008

Það er nú meiri að vera námsmaður í útlöndum á þessum tíma. Sem betur fer átti ég sparipening hérna úti í Svíþjóð frá því í gamladaga sem við notum bara núna þessa dagana.

Ég sagði frá því síðast að ég ákvað að skrá mig í annan áfanga sem er í raun önnur önn, þannig að nú er ég að lesa önn 4 og önn 5 á sama tíma. Næstu önn mun ég lesa önn 3 og svo byrja ég í bekknum mínum næsta haust (sá bekkur sem ég les önn 4 með núna og var í bekkjarparty síðustu helgi). Næsta haust byrja ég sem sagt á önn 6 og þá byrja ég í praktik, spennó.

Áfanginn sem ég byrjaði að lesa núna er taugasálfræði og var einmitt að koma heim úr einni kennslustund þar sem við vorum í meinafræðihúsinu að skoða heila. Við vorum í "kennslustofu" þar sem 5 krufningarborð voru og manni leið alveg eins og maður var kominn inn í CSI krufningarstofuna. Við vorum með nokkra heila sem konan sem kennir okkur var að "kryfja" (skera í sundur) til að greina sjúkdóminn sem einstaklingurinn dó úr. Hélt að ég myndi eiga erfiðara með þetta en ég kom meira segja við heila úr 88 ára gamallri konu sem var með alzheimer. Kennarinn sýndi okkur einnig heila þar sem maðurinn hefði fengið lungakrabbamein og krabbinn dreift sér upp í heila. Frekar spes að sjá hana sneiða niður heila alveg eins og maður sker brauð (ca 1cm heilasneið). Þetta var mjög spennandi en líka frekar óhuggulegt og ég finn ennþá formalínslykt allstaðar.

Skipulag helgarinnar er þannig að Hjalti er í verklegri æfingu til kl 21 á föstudeginum og ég fer í Knutkalas (allir koma með mat) með stelpunum sem voru líka teknar inn í sálfræðideildina eins og ég, senare del. Svo ætlum við Hjalti, þrátt fyrir íslenska gengið, að skella okkur til Köben á Laugardaginn og hitta Söndru vinkonu, sem er kannski ekki að fara í helgarferð til Köben á besta tímanum, en það verður gaman að hitta hana. Svo ætlum við að hitta verkfræðimafíuna þarna úti og gista hjá Tuma og Arndísi. Þannig að þetta verður skemmtileg helgi. Reyndar þarf ég að skila inn heimaverkefni þarna á mánudaginn, en það ætti nú að bjargast.

Reyndar er það eitt sem tengist þessu heimaverkefni. Veit að ég hef talað um það áður en hérna í Svíþjóð má maður hafa sínar skoðanir og maður á að skrifa sína eigin túlkun á t.d. bókina sem við erum að lesa núna. Þetta er ekkert sem maður lærir í HÍ og á ég því í mestu vandræðum með þetta. Var að tala við stelpu (Ida) sem tók BA gráðu í Bretlandi en hún á líka við sama vandamál að stríða. Þetta er alveg hræðilegt, því að maður er svo vanur að þurfa vitna í einhvern og rökstyðja mál sitt með heimildum og tilvísunum í aðra fræðimenn.

Jæja best að fara vinna í þessu heimaverkefni.

Share on Facebook
 
6 hafa tjáð sig um þessa færslu
 
Arndís sagði klukkan 14:46 þann 9.October 2008
 
Hlakka til að sjá ykkur á laugardaginn, það verður búið að fylla á ölbirgðirnar ;)
 
Vilhjálmur sagði klukkan 18:07 þann 10.October 2008
 
Já það er aldeilis, bara verið að ferðast með flottheitum til Köben, en Silja ef þig vantar einhvern til að vitna í... annað en einhverja bók, þá máttu vitna í mig.
 
Lydía Dögg sagði klukkan 20:28 þann 12.October 2008
 
Þíð standið ykkur vel sætapar :D
 
Sigga sagði klukkan 12:37 þann 13.October 2008
 
Já það er erfitt að hafa sína eigin skoðun!!! ;) knús yfir hafið
 
Svava sagði klukkan 21:01 þann 15.October 2008
 
Usch, en eckligt, en ég vona að formalinlyktin sé farin. ég talað við Allan í dag og hann var með svo ótrúlegan dialekt, maður heyrir þetta svo vel eftir svona langan tíma. upphæði hennar Lydíu hefur lækkað um 3þ frá því að þú tóks þitt út. en í dag fór gengi bréfanna í Svíþjóð aðeins upp þannig vonandi fer þetta að jafna sig. kv M
 
Siggi sagði klukkan 21:40 þann 16.October 2008
 
Gott að heyra að þið eruð að standa af ykkur óveðrið ! Kveðjur frá Boston -Siggi
 
Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu?
 
Stjórnborð