| Mamma í heimsókn |
| Silja ritaði 26.January 2009 |
Fórum í göngutúr í Statsparken í desember og tókum nokkrar myndir, hér er ég hjá andartjörninni, bara svona til að skreyta bloggið aðeins Mamma kom í heimsókn á fimmtudaginn, notaði tækifærði því að hún var að fara á fund í Kaup-mannahöfn um helgina, enda Köben nú bara rétt hjá (tekur 49 mín í lest frá Köben yfir til Lund). Það var ósköp gaman að fá hana í heimsókn. Sýndi henni bæinn á fimmtudaginn og svo bauð hún okkur út að borða á VESPU sem er pizzastaður hérna í næstu götu hjá okkur, með mjög góðar eldbakaðar pizzur. Uppgötvaði inná pizzustaðnum að ég gat talað og Hjalti og mamma heyrðu í mér. Er reyndar búin að vera dálitið hás og fæ krampa af og til í raddböndin. Svo á föstudaginn þurfti ég að fara í skólann, mamma ákvað að skella sér í klippingu (enda ógeðslega margar hárgreiðslustofur í Lundi og allar með drop in – því að það er ekki mikið að gera hjá þeim). Hún fór svo í búðir og fór á einn fund hérna í Lundi. Við Hjalti fórum á heilsugæslustöðina, hann er búin að vera með mjög slæma hálsbólgu og hita (við erum svo samtaka í þessu) og núna erum komin með fínan heimilislækni. Við hittum svo mömmu heima og ég ákvað að hjóla með gömlu aðeins um bæinn og sýna henni meira af Lundi, en við festumst í búðum þannig að hún sá bara miðbæinn í þetta skipti. Mamma kom með lambalæri til okkar og við ákváðum að borða það á föstudaginn, reyndar sá ég fram á það að við Hjalti þyrftum að borða það líka næstu daga þannig að ég bauð Líneyju í læri líka og við sátum langt fram á kvöld og borðum íslenskt lamb, Nóa súkkulaðirúsínur og Semlur (sænskar bolludagsbollur). Mamma fór svo á laugardagsmorgun. Þar sem ég var búin að tala ansi mikið síðustu daganna og átti oft mjög erfitt með það ákvað ég að fara í sólarhrings þagnarbindindi. Byrjaði um hádegi á laugardeginum- það gekk nú bara mjög vel, var eins og ég væri í actionary allan daginn. Reyndar missti ég út úr mér tvísvar sinnum nokkur orð og svo talaði ég smá milli svefns og vöku við Hjalta um nóttina. Þannig að þegar ég vaknaði á sunnudagsmorgninum ákvað ég að hætta að þegja - það er bara ekkert fyrir mig, þarf að tjá mig og það tekur svo langan tíma að skrifa hluti niður eða vera í actionary leik. Er að undirbúa fyrirlestur þessa dagana, sem ég og tveir strákar í nýja bekknum mínum þurfum að sjá um á föstudaginn, eigum að fjalla um efnið Coping út frá social cognitiv theory í tvo tíma. Það mun nú eflaust ganga vel nema ef ég fæ krampa í raddböndin. Heyrumst svo seinna. |
| Share on Facebook |
| 5 hafa tjáð sig um þessa færslu |
| Unnur sagði klukkan 11:57 þann 26.January 2009 |
| Batnaðarkveðjur til ykkar í Lundi! Knús og kossar Ég var einmitt að lesa um lambalæri og semlur á blogginu hennar Líneyjar...annsi skemmtileg svíjastaðreynd þar líka :P Mæli með að þið kíkið á það :D |
| Arndís sagði klukkan 12:54 þann 26.January 2009 |
| Batakveðjur frá Danmark yfir til Sverige. |
| Lydía sagði klukkan 17:27 þann 26.January 2009 |
| Mmm semlur, biddu borðaðir þú solleis?? |
| Silja sagði klukkan 17:35 þann 26.January 2009 |
| Nei reyndar ekki, en hinir fengu bara meira. Þessi gubbupest mín eftir semluát heldur fast í, mjög vel skilyrt á sálfræði tungumáli :) |
| Kristin Ruth sagði klukkan 19:05 þann 27.January 2009 |
| heyhey Blogg!! Æði .. nu getur maður fylgst með ;) |
| Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu? |
| Nýjustu færslur |
| Eldri færslur | ||||||
|
||||||
| Vinir |




2010 (2)
March (1)
. 