Nýjustu færslur
 

Eldri færslur
2010 (2)
March (1)
Farið að vora
January (1)
Ný önn
2009 (18)
December (1)
Jólin bara alveg næstum því að koma
October (1)
Við erum á lífi
August (2)
Roadtrip 2009
Komin aftur til Svíþjóðar
May (1)
Maí
April (3)
Fréttir
Glad Påsk
Sól og sumar
March (3)
Fjólublátt gifs
Silja seinheppna
Söngur vs ískur
February (3)
Bolla, semla, bolla
Heima er best
Flutt á Kjammann
January (4)
Íbúð á Kjammanum
Mamma í heimsókn
Skólinn byrjaður aftur
Á Íslandi er gaman...
2008 (18)
December (1)
Bráðum koma blessuð jólin...
November (4)
Vetur í Lundi
Unnur í heimsókn
Tvö lokapróf og ein aðgerð
HÍ fílingur
October (4)
Fréttir
Prófavika
Heilaskoðun
Fyrsta heimsóknin
September (5)
Loksins
Undur og stórmerki
Verkefnin byrja að streyma
Lífið í Lundi
Sálfræðinámið og akedemískt korter
August (3)
Fréttir af okkur
Komin með sjónvarp og hjól
Komin til Lundar
June (1)
Loksins hipp og kúl
 

Vinir
 


Silja seinheppna
Silja ritaði 13.March 2009

Mér fannst ekki nógu spennandi hlutir að gerast á blogginu ákvað ég það væri kominn tími til að hressa aðeins upp á þetta. Ég fór eins og aðra daga hjólandi í skólann á mánudaginn. Svo heppilega vildi til að gangandi vegfarandi fór í veg fyrir mig þannig að ég flaug af hjólinu og mölbraut á mér olnbogann.

Þar sem mér fannst innskotið í áramótaskaupinu þar sem Ilmur syngur ævintýri eru að gerast svo frábært þá ákvað ég að líta á þetta óhapp sem ævintýri. Ég hef aldrei slasast alvarlega áður og þetta eru því spennandi tímar fyrir mig. Ég er til dæmis búinn að vera í þrjá daga á spítala vegna þess að ég þurfti að fara í aðgerð þar sem olnboginn var skrúfaður saman. Ég hef heldur aldrei áður verið í gipsi (auðvitað á hægri hendi) og þarf að nota alla mína krafta til þess að hreyfa mig eitthvað að viti. Þrátt fyrir mikla verki og óþægindi er ég nú 6 skrúfum,títaníum plötu og styrkingar vír ríkari eins og sést á röntgen myndinni.

Þar sem Hjalti er í próflestri þá ákvað mamma að fljúga út til mín og ég er því með tvo í fullri vinnu við að aðstoða mig.

Share on Facebook
 
7 hafa tjáð sig um þessa færslu
 
Arndís sagði klukkan 16:05 þann 13.March 2009
 
Gastu ekki fundið upp á einhverju þægilegra fyrir þig til að skemmta lesendum? Láttu þér batna Silja mín. P.S. ég sé 7 skrúfur á myndinni(ein hjá vírnum og 6 við plötuna)
 
Silja sagði klukkan 18:51 þann 13.March 2009
 
Æji... það er ekkert að marka mig, ég er svo uppdópuð...
 
Olla sagði klukkan 23:39 þann 14.March 2009
 
æhh leiðinlegt að heyra :( Vonandi ertu ekki alveg við að farast úr verkjum. Ég vona að það sé stjanað við þig af fullum krafti. Hafðu það svaka gott. Sakna þín mikið og vildi að þú værir hér hjá mér. Kossar og knús, þín Olla
 
Unnur Ósk sagði klukkan 20:01 þann 15.March 2009
 
BATAKVEÐJUR!!!
 
Lilla syss sagði klukkan 17:33 þann 18.March 2009
 
Hvenig gengur allt hjá þér silja mín?? Geggja flott mynd ;) okkur verkar hérna í olbogunum með þér!!
 
Lilja Rún sagði klukkan 14:43 þann 20.March 2009
 
Það virðist vera alveg sama hvað þú tekur þér fyrir hendur (hendi) það er sko gert almennilega ;) Farðu vel með þig og góðan bata
 
Sigga sagði klukkan 16:47 þann 21.March 2009
 
Þetta er nú bara ein "töffaðasta" röntgenmynd sem ég hef séð!!!!! Láttu þér batna skvísa
 
Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu?
 
Stjórnborð