Nýjustu færslur
 

Eldri færslur
2010 (2)
March (1)
Farið að vora
January (1)
Ný önn
2009 (18)
December (1)
Jólin bara alveg næstum því að koma
October (1)
Við erum á lífi
August (2)
Roadtrip 2009
Komin aftur til Svíþjóðar
May (1)
Maí
April (3)
Fréttir
Glad Påsk
Sól og sumar
March (3)
Fjólublátt gifs
Silja seinheppna
Söngur vs ískur
February (3)
Bolla, semla, bolla
Heima er best
Flutt á Kjammann
January (4)
Íbúð á Kjammanum
Mamma í heimsókn
Skólinn byrjaður aftur
Á Íslandi er gaman...
2008 (18)
December (1)
Bráðum koma blessuð jólin...
November (4)
Vetur í Lundi
Unnur í heimsókn
Tvö lokapróf og ein aðgerð
HÍ fílingur
October (4)
Fréttir
Prófavika
Heilaskoðun
Fyrsta heimsóknin
September (5)
Loksins
Undur og stórmerki
Verkefnin byrja að streyma
Lífið í Lundi
Sálfræðinámið og akedemískt korter
August (3)
Fréttir af okkur
Komin með sjónvarp og hjól
Komin til Lundar
June (1)
Loksins hipp og kúl
 

Vinir
 


Maí
Silja ritaði 10.May 2009

Jí minn eini, tíminn líður svo hratt og ég er næstum því búin með eina önnina enn, 4 ár í sálfræðinámi hugsa sér. Á bara tvær litlar skýrslur eftir og nokkra tíma og svo er það bara Ísland hið góða og vinna á fullu. Reyndar förum við mamma í heimsókn til Lydíu systur sem er búin að vera í Lúxemborg frá því í janúar að passa börn. Nú er hún reyndar komin til Þýskalands eða við landamærin á milli Þýskalands og Lúxemborgar skilst mér. Ég hitti mömmu i Köben á föstudaginn næsta (15 maí) og við verðum á ferðinni í 5 daga. Svo kem ég heim (Svíþjóð) í smá stund og slappa af og hver veit nema ég þjónusti hinn námsmanninn á heimilinu sem er þá á fullu í prófalestri.

Af hendinni minni er nú ekkert sérstakt að frétta, er á fullu í sjúkraþjálfun og vona að ég geti keyrt bil í sumar án þess að vera stórhættuleg í umferðinni enda felst mikill hluti af yfirleiðbeinenda starfinu (vinnan mín) í að keyra á milli staða og tala í símann (auðvitað með handfrjálsan). Að skammast og stjórnast, sem er annar stór hluti af starfinu (og ætli ég sé ekki bara frekar góð í því), get ég alveg gert án hægri handar en ég verð að komast á milli staða til þess að geta sinnt því.

Tengdó komu í heimsókn 1 maí og við fengum þetta yndislega veður og svo þegar þau fóru kom bara rigning. Við keyrðum um Skåne og þau sýndu okkur (mér) nú meira heldur en við gátum sýnt þeim enda hafa þau nú búið lengur á þessu svæði en ég (Hjalti bjó náttúrulega hérna þegar hann var lítill og kannaðist við flest svæðin sem við skoðuðum). Þau mæla með gistiheimilinu á Kjammanum 8 B117 þannig að þeir sem vilja kíkja til suður Svíþjóðar ættu endilega að nýta sér það.

 

 

 

Hlakka mikið til að koma heim, knúsa kisurnar mínar og kannski einhverja fleiri. Hugsa að það verði lítið um bloggfærslur í sumar en síðan verður nú alla vegna virk aftur í haust svo að allir geti fylgst með okkur hérna í Svíþjóð.

Set inn nokkrar myndir frá maí.

Share on Facebook
 
Enginn hefur tjáð sig um þessa færslu
 
Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu?
 
Stjórnborð