| Vetur í Lundi |
| Silja ritaði 27.November 2008 |
Uppfært: setti inn eina snjómynd frá garðinum okkar Jæja langt síðan ég skrifaði blogg og margt hefur gerst. Það hefur verið mjög mikið að gera hjá okkur báðum í skólanum og fyrsti snjórinn féll hérna á föstudaginn í síðustu viku. Þetta var nú ekki mikill snjór kannski nokkrir cm en Svíarnir eru svo klikkaðir þeir ryðja göturnar fyrir svoleiðis smáræði. Á laugardeginum vöknuðum við kl 7:30 við mikil óhljóð sem komu frá garðinum okkar. Þá var þetta bara einhver í næsta stigagangi að skafa snjóinn af malbikaða stigagangsgarðinum þeirra, KL: HÁLF ÁTTA Á LAUGARDEGI, og ekkert að hugsa um óhljóðin sem vekur alla í húsunum. Húsið okkar er nefnilega stór ferningur með garði inn í miðju og svo er garðurinn hólfaður niður á nokkra stigaganga. Við erum búin að komast að því að Svíarnir fara snemma að sofa og þeir vakna snemma. Hjalti tók voðalega fallega snjómynd af trénu í “garðinum okkar” sem ég ætlaði að segja hérna inn en tölvan mín ákvað að deyja um helgina, blessuð sé minning hennar. Dálitið sárt enda hefur hún verið hluti af mér síðustu rúm 4 árin. Ég var sem sé búin að setja fallegu myndina inná tölvuna og náttúrulega alltaf svo dugleg að taka til þannig að ég eyddi myndunum út af minniskortinu þannig að þið verðið bara að ímynda ykkur snjóinn og tréð í garðinum. Sem betur fer hefur tölvan verið veik í nokkurn tíma og Hjalti var ný búin að reyna að lækna hana og tók þá afrit af öllum gögnum mínum, þannig að ég missti bara þessar vetrarmyndir. Ég fór svo í próf á þriðjudaginn og það gekk ekki alveg nógu vel held ég, en ég vona að ég nái þessu prófi. Í deildinni minni eru nefnilega ekki gefnar einkunnir heldur er aðeins Godkänt eða Underkänt (náð eða fallið). Ég fékk godkänt á Taugasálfræði prófinu sem ég tók um daginn, þannig að sá áfangi er búin og þá er bara að vona að ég fái það líka á Hópasálfræðinni. Er farin að finna dálitið mikið fyrir því að vera að lesa tvær annir í einu, maður þarf virkilega að velja það sem er mikilvægast að lesa og sleppa hinu. En þetta er að fara að klárast, á vorönninni les ég bara eina önn þannig að það verður dálitið rólegra hjá mér á þeirri önn. Eftir prófið á þriðjudaginn fórum við Hjalti svo úti Nova Lund í allar tækni og tölvubúðir til þess að skoða tölvu fyrir mig, því að maður getur bara ekki verið án tölvu, þetta voru alveg hræðilegir dagar hjá mér þegar ég var ekki með tölvuna mína og Hjalti hefði tekið sína í skólann. Maður verður bara einangraður frá umheiminum. Við fundum eina ósköp sæta og fína tölvu fyrir mig, 12 tommu Packard Bell, með webcam (það var eina ósk mín svo maður geti nú skypað almennilega). Nú er það bara að venjast nýju lyklaborði og Windows Vista. Í næstu viku klára ég tvo áfanga til viðbótar, skila inn hópdagbókinni sem hópurinn minn er að vinna að þessa dagana og svo fer ég í einhverskonar hóppróf í meðferðafræðinni með psychodynamiska áherslu á fimmtudeginum í næstu viku. Þá fæ ég alveg 4 daga frí og svo byrja ég í tveimur nýjum áföngum, lögfræði sálfræðinnar og meðferðafræði með kognitiv(hugræna)áherslu. Þessa áfanga klára ég ekki fyrr en 16 janúar, þannig að maður þarf nú kannski eitthvað að kíkja í bækurnar um jólin. Hjalti er að skila nokkrum verkefnum núna og svo byrjar prófatímabil hjá honum, að ég held eftir tvær vikur. Svo komum við heim þann 18 des. Hlakka mikið til. |
| Share on Facebook |
| 2 hafa tjáð sig um þessa færslu |
| Vilhjálmur Ásmundsson sagði klukkan 22:44 þann 1.December 2008 |
| Gaman að heyra, já getur gerst að tölvur deyja, og Svíarnir... hefður getað sagt ykkur þetta hehe. En HLAKKA þvílíkt til að fá ykkur heim, síðasta prófið mitt er einmitt 17 des, þannig hittir asskoti vel á :D |
| Unnur Ósk sagði klukkan 22:37 þann 2.December 2008 |
| Hlakka til að sjá ykkur :D Gangi ykkur ofsalega vel með allt saman. Knús og kossar! |
| Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu? |
| Nýjustu færslur |
| Eldri færslur | ||||||
|
||||||
| Vinir |




2010 (2)
March (1) 
