Já héðan frá Lundi er nú litið að frétta þessa dagana. Það sem er gert hér er að fara í skólann, borða, sofa og fara út að hlaupa einstaka sinnum.
Hjalti er búin að vera í fríi seinnihluta vikunar og er búin að hanga upp í rúmi að horfa á TV. Ég er búin að vera mikið í skólanum, er að byrja í nýjum áfanga núna, Hópar og félagsleg áhrif. Þetta virðist vera mjög skemmtilegur og áhugaverður áfangi, hvernig hópar þróast og hvernig fólkið í hópnum þroskast saman. Þannig að núna er "fríið" mitt búið, er nefnilega bara búin að vera í einum áfanga síðustu tvær vikur. Næst á dagskrá er svo lokapróf í taugasálfræðinni 11 nóv. og á þeim degi fáum við líka heimsókn. Unnur vinkona ætlar að koma hingað í heimsókn, það verður eflaust mjög skemmtilegt.
Þar sem ég hef ekki mikið að segja ykkur ætla ég að deila með ykkur smá sem ég hef lært hérna úti. Þetta er alveg bráðnauðsynlegt að vita/kunna.
- Fyrir þá sem fara að skæla þegar þeir skera lauk:
- Lausnin er fundin. Þú þarft ekki lengur að nota sundgleraugun. Fáðu þér vatnssopa og ekki kyngja á meðan þú skerð laukinn. Best er ef vatnið er alveg ískallt.
- Ertu með lag "á heilanum", eða hugsun um eða sem þú villt ekki hugsa um:
- Losnaðu við lagið/hugsunina með því að þylja upp endalausta talnarunur í þónokkurn tíma. Þá hverfur lagði. Þetta minnir nú reyndar dálitið á þá sem eru með áráttu og þráhyggju en þetta virkar

Heyrumst seinna. |