| Ný önn |
| Silja ritaði 21-01-2010 |
Jæja þá er ný önn hafin. Við erum búin að koma okkur fyrir í íbúðinni okkar, þurftum bara að fara í tvær IKEA ferðir til þess að fylla uppí tómarúmið, enda tvöfalt stærri íbúð en sú sem við vorum í. Nú erum við með svefnherbergi, gestaherbergi með fínum svefnsófa, herbergið hans Hjalta (skrifstofa), stofu/borðstofu, eldhús og klóset með fínu baðkari. Þetta er bara fínasta íbúð og fyndast er að maður heyrir eiginlega bara íslensku hérna í garðinum. Til dæmis er íslensk fjölskylda í íbúðinni fyrir ofan okkur og ein í íbúðinni beint á móti okkur. Við erum nú smá virk í íslenska félagslífinu hérna. Ég mæti kjaftaklúbb annan hvorn sunnudag og Hjalti er byrjaður í badminton með íslensku strákunum. Hins vegar finnst mér líka mjög mikilvægt að halda samband við sænsku vinina (þá aðallega vinkonur mínar úr sálfræðinni hérna) og ætla að halda smá pizzuparty fyrir þær á morgun. Ég byrja frekar rólega í skólanum þessa önn, það er verið að undirbúa okkur fyrir að taka á móti skjólstæðingum í meðferð. Sálfræðideildin er með móttöku þar sem nemarnir á önnum 7-10 reyna að hjálpa villtum sálum á rétta braut. Þetta er aðallega fólk með kvíða og þunglyndi sem koma á þessa móttöku. Mér finnst þetta mjög spennandi og vona að þetta gangi nú bara vel. Við verðum svo með þessa skjólstæðinga meðfram hinu náminu. Um miðjan mars byrja ég svo í svaka stórum vinnusálfræði kurs sem heldur svo áfram yfir á næstu önn. Þetta hljómar spennó en þeir segja að þetta sé frekar þungir áfangar. Við skulum bara sjá til hvernig þeir eru miðað við áfangana í HÍ. Hjalti er líka byrjaður í skólanum. Hann er í tveimur tímum á viku, annar á mánudegi og hinn á föstudegi, ansi mikið að ger hjá honum eða þannig. Reyndar eru þetta tveir áfangar, hann heldur áfram að byggja þetta projekt sem hann var að hanna fyrir jól auk þess sem hann er í umhverfis- og auðlindaáfanga. Hann er nú reyndar líka duglegur að vinna fyrir Kögun og svo er hann að fara að leita sér að mastersverkefni.
Svo var ég búin að lofa að Hjalti myndi setja inn myndband af Segway-inum sem hann bjó til fyrir jól. Hérna er stutt myndband. Einnig er hægt að downloada því hér. Jæja læt þetta duga í bili. |
Enginn hefur tjáð sig.
|
| Jólin bara alveg næstum því að koma |
| Silja ritaði 16-12-2009 |
Jæja þá kemur loksins smá færsla, við erum búin að vera hryllilega léleg að blogga þessa önn. Smá svona yfirlit yfir önnina. Ég bara búin að vinna alla daga í starfsþjálfuninni minni á BUGL og líkar mjög vel. Tíminn er búin að fljúga áfram og mér finnst ég ekkert vera heima hjá mér enda að heiman 11 klst á dag. Kem heim um kvöldið og hef þá bara verið að dútla mér og svo er bara komin nótt og svo aftur næsti dagur. Mér finnst eins og það sé kannski svona lok október en svo er víst ekki. Það er líka búið að vera svo hlýtt hérna úti þannig að manni finnst það ekki vera komin jól. Ég skaust í óvænta heimsókn í tvo sólahringa heim til Íslands í lok október þegar pabbi minn varð fimmtugur. Skemmtilegt að geta komið fólki svona á óvart og maður verður nú að nýta tækifærið þegar maður getur plottað svona. Hjalti varð eftir í Svíþjóð þar sem hann var í prófum akkúrat þá. Fyrir þá sem hafa ekki frétt af því erum við Hjalti komin með fjögurra herbergja íbúð á Kjammanum. Við fáum hana 1 jan en við vorum reyndar búin að semja við stelpuna sem býr þar núna að flytja dótið okkar inn fyrr. Þetta gerðum við í gær og nú búum við í tómri íbúð með tvær dýnur á gólfinu og föt í ferðatöskum. Fengum nokkra hrausta íslenska karlmenn til þess að hjálpa okkur og flutningurinn tók nú bara tæplega klukkutíma. Sænska vinkona mín Ida, sem reyndi að hjálpa okkur, var nú alveg hissa á hvað íslendingar væru duglegir og fljótir að þessu. Þannig að nú er nóg af plássi hjá okkur fyrir þá sem vilja koma til Svíþjóðar að eyða peningum sinum i H&M eða hitta okkur Þannig að nú sofum við bara á golfinu fram á föstudag þegar við þurfum að skila af okkur þessari íbúð. Ætlum svo eflaust að kíkja yfir til Köben eina nótt og komum svo til Íslands á sunnudaginn. Sjáumst bráðum og gleiðileg jól. |
Enginn hefur tjáð sig.
|
| Við erum á lífi |
| Silja ritaði 04-10-2009 |
Já ég veit að við erum ekki búin að blogga í mjög langan tíma, skamm skamm, við erum samt á lífi. Búið að vera mikið að gera hjá okkur báðum í skólanum (sænskt “mikið að gera” ekki íslenskt). Ég var að klára áfanga núna á fimmtudaginn og byrja svo á mánudaginn að leika sálfræðing í 15 vikur. Er að fara í starfsþjálfun og á endanum lenti ég á BUGL í Eslöv sem er aðeins fyrir utan Lund (10 mín í lest). Er alveg rosalega ánægð að hafa lent á þarna því að ég fékk ekkert af óskunum mínum þegar við fengum að “velja” meðal þeirra plássa sem voru í boði. Fékk til að byrja með skóla hérna í Lundi sem ég var svo sem ánægð með en vildi mun frekar vera á BUGLi (eins og allir í bekknum mínum). Svo datt þetta pláss inn, nokkrum dögum seinna og ég hringdi eins og skot og plássið var mitt (enda gilti: fyrstur kemur fyrstur fær eða först till kvarn eins og Svíarnir segja). Þannig að nú verð ég “fullorðin” í 15 vikur og fer í vinnu frá 8 til 16:30. Versta við þetta er að ég þarf að vakna kl 6 til þess að geta náð strætó til þess að ná lestinni minni sem fer korter yfir 7 (svona er þetta að vera ekki á bíl hérna úti enda tæki það bara korter að keyra til Eslöv en jæja maður veður vist að aðlagast sænska lífinu = að pendla). Það sem Hjalti er að gera núna í skólanum er mest verkefna vinna og stýritækni tengd því og hann ætlar að segja ykkur frá verkefnunum síðar (næsta blogg). Það er búið að vera alveg rosalega gott veður hérna í Lundi alveg þar til fyrir viku síðan, næstum því alltaf yfir 17 °C og sól og blíða en núna er haustið komið og það rignir og veðurfræðingarnir vara við stormi (bara smá rok finnst mér nú enda vön íslenska veðrinu). Skemmtilegasta við rokið er að við erum með fullt af grænum póstkössum út í garði (fyrir utan svefnherbergisgluggann okkar) og þegar það er rok þá blæs lokið á þeim upp og svo skellist það aftur, þetta er því hálfgerður kór af póstkassasöng sem syngur ekki bestu vögguvísuna sem við höfum heyrt (miður skemmtilegt). Við erum búin að kaupa okkur flug heim um jólin, alveg svakalegt hvað flugfélögin ætla að græða á litlu fátæku námsmönnunum sem vilja vera hjá fjölskyldunum sínum á Íslandi um jólin. Þannig að ekki búast við jólagjöfum frá okkur í ár frekar en í fyrra, voða þægilegt að geta bara gefið sjálfan sig í jólagjöf þar sem það er hundleiðinlegt að þurfa að finna jólagjafir fyrir fólk sem á allt. Alla veganna komum við heim 20 des. og förum svo út aftur 4 jan. Fyrir þá sem eru ekki búnir að taka eftir því á smettisskruddunni þá erum við komin með flickr síðu og setjum þar inn myndir sem við höfum tekið á nýju fínu myndavélinni okkar. Áhugasömum er bent á að skoða http://www.flickr.com/photos/hjalti_silja
Mér datt í hug að fræða ykkur um Svía aðeins hérna á blogginu okkar. Hérna kemur fyrsti búturinn: |
Enginn hefur tjáð sig.
|
| Roadtrip 2009 |
| Silja ritaði 31-08-2009 |
Ætlaði nú bara svona að segja ykkur frá ferðinni okkar. Við byrjuðum á að sækja bílinn okkar á bensínstöðinni hérna aðeins neðar í götunni okkar. Var búin að segja ykkur að hann væri blár og appelsínugulur en það var ekki rétt. Við fengum nefnilega annan bíl þetta skiptið, Yaris iQ (hvítur og appelsínugulur) alveg pínku lítill bil, eins gott að við vorum bara tvö í þessari ferð. Reynar var þetta hagstæðasti bíllin fyrir okkur þar sem hann eyddi bara 4,6 l. á hundraði og við keyrðum um 1400 km á þessum fjórum dögum. Hún Stína (sem ég hef ákveðið að kalla nýju græjuna hans Hjalta – Garmin GPS tæki) hjálpaði okkur að rata þó að ég hafi nú samt verið á kortinu og við konurnar hans Hjalta (ég og Stína) voru nú ekki alltaf sammála. Hún fór oft alveg í kerfi þegar Hjalti hlustaði á mig en ekki hana. En hér getið þið séð hvar við keyrðum.
Eins og þið sjáið á kortinu fórum við stundum svolitlar krókaleiðir, það er vegna þess að við báðum hana Stínu um að leiða okkur framhjá hraðbrautunum. Enda var býflugan (bíllinn leit út eins og býfluga – þú afsakar pabbi minn) næstum því búin að taka á loft nokkrum sinnum þegar við urðum að fara á vindsamar hraðbrautir.
Byrjuðum á því að keyra meðfram vesturströnd suður Svíþjóðar, komu Á þriðjudaginn héldum við svo áfram upp i Ängelholm og áfram upp í Båstad, sem er æðislegur bær (þekktur fyrir árlega tenniskeppni). Keyrðum svo þvert niður yfir Svíþjóð til Kristianstad, en þar gistum við í litlum kofa. Um kvöldið keyrðum við niður í Åhus sem er strandar og túristabær og alveg rosalega sætur. Þarna eiga margir Svíar sumar(strandar)bústaði, enda mjög flott strönd þar. Á miðvikudaginn keyrðum við svo til Sölvesborg og aðeins meðfram austur ströndinni, svo upp til Emmaboda þar sem við ætlum að skoða glerverksmiðju, þar sem maður fær að sjá menn blása glerið en það var lokað þegar við komum. Við héldum þá bara áfram til Kalmar og yfir til Öland. Þar gistum við á rosalega fínu farfuglaheimili sem við mælum virkilega með. Um kvöldið grilluðum við aftur á ströndinni rétt hjá farfuglaheimilinu. Á fimmtudaginn keyrðum við svo um Öland og skoðuðum meðal annars syðsta odda Ölands með öllum fuglaskoðunarlúðunum (greinilega mikið um fuglalíf á Ölandi og því fullt af eldra fólki með svaka kíkja svo þeir missa nú ekki af þessum fuglum). Sorry ef ég er að særa einhvern fuglaskoðunarlesanda en við skiljum ekki alveg þetta sport. Fórum einnig að skoða höllina Solliden en þar tilkynti yngsta sænska prinsessan trúlofun sína núna í sumar. Rosalega flottur garður en maður mátti ekki fara nálægt húsinu þar sem þetta er eitt af sumarhúsum kóngsins. Svo keyrðum við heim til okkar og gistum heima hjá okkur.
Þar sem Hjalti fékk loksins að kaupa sér myndavélina sem honum er búin að langa í í nokkurn tíma erum við með fullt af myndum úr ferðinni og erum búin að setja þær hérna inn á síðuna okkar. |
3 hafa tjáð sig.
|
| Komin aftur til Svíþjóðar |
| Silja ritaði 23-08-2009 |
Jæja we are back in business þannig að þið getið byrjað að fylgjast með blogginu aftur. Komum til Svíþjóðar í gærmorgun eftir mjög langan dag. Maður verður svo ruglaður þegar maður tekur svona næturflug, sérstaklega þegar maður verður að horfa á bíomyndirnar sem eru í boði – maður nýtir sko allan peninginn sinn núna. Svo fær maður sér bara morgunmat þegar maður kemur heim og svo fer maður að sofa í smá stund en alls ekki of lengi því að þá getur maður ekkert sofnað seinna um kvöldið. Sumarið hefur verið mjög gott hjá okkur skötuhjúunum. Við erum búin að vinna alveg helling, borða fullt af góðum mat, fara í útilegur, hitta skemmtilegt fólk og svo náttúrulega braut ég ofurklaufi mig aftur. Það er víst ekki mælt með því að maður fari að reka hesta á ójöfnu svæði (og detta meira segja 2x í holur) þegar maður er frekar nýlega (3vikur) búin að taka allt járndraslið úr beinunum sem var sett þangað til að byrja með til þess að halda olnboganum saman. En ég á núna fínt skrúfusett (reyndar plötu og vír líka) og verð komin með annað slíkt eftir ár, þannig að ef ykkur vantar títaníum skrúfur þá getið þið fengið þær á góðu verði. Þetta verður greinilega sagan endalausa þetta blessaða olnbogbrot þar sem þetta er ekki búið enn og eins og læknirinn minn á Íslandi sagði þá verða sænsku læknarnir eflaust hissa þegar þeir sjá röntken myndina mína núna í september, sem átti að meta hvort þeir myndu taka allt járndraslið úr mér eða ekki. Víravírkið barasta horfið og önnur plata komin í staðinn. Annað sem við og þá meina ég aðallega Hjalti (þar sem ég er orðin of fötluð til þess að hjálpa) gerðum í sumar var að halda áfram að gera upp traktorinn sem er af gerðinni Deutz (um 50 ára gamall. Við byrjuðum á þessu í fyrra og heldum áfram núna þegar við vorum á Hálsi (gamall bóndabær sem foreldrar hans Hjalta eiga á Snæfellsnesi). Vildi bara sýna ykkur afraksturinn. Skólinn hjá okkur byrjar nú ekki fyrr en 31 ágúst en við ákváðum að skella okkur í ferðalag um suður Svíþjóð. Erum búin að leiga okkur bílaleigubíl (bláan og appelsínugulan með fullt af auglýsingum á) og panta gistingu á þremur farfugla-heimilum. Það verður vonandi gaman að keyra um hérna og skoða sveitirnar. Endilega kvittið þið svo að við vitum nú hverir eru að fylgjast með okkur. |
5 hafa tjáð sig.
|




2010 (1)
January (1)
Enginn hefur tjáð sig.



m við í Landskrona, Viken, sem er greinilega ellismellabær og áfram til Helsingborg. Héldum svo áfram til Höganäs þar sem við gistum á sæmilegu farfuglaheimili og keyrðum um kvöldið kringum nesið og skoðuðum bæina þar í kring t.d. Mölle og Arild. Þessir bæir eru rosalega sæt gömul fiskarasamfélög en lífa núna mest á túrisma. Grilluðum á ströndinni í Mölle á nýja fína ferðagrillinu okkar.
Á föstudeginum keyrðum við svo með suðurströnd Svíþjóðar. Fórum á Falsterbonäset og þar eru flottustu strendurnar sem við sáum í þessu roadtrip hjá okkur. Keyrðum svo niður til Trelleborg og þar var Palmfestivalen að byrja þannig að það voru fullt af sölubásum með allskonar dóti, mat og nammi. Heldum svo áfram til Smygehamn en það er syðsti oddi Svíþjóðar. Næsti staður var svo Ystad og svo heldum við heimáleið, fórum reyndar framhjá Lundi og komum við í Bjärred og fórum á Löngu bryggju og horfðum á sólsetrið þar..jpg)